Varnarkerfi gegn byssudrónum þróað Bandaríkjunum

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum eru að útbúa varn­ar­kerfi til að fyr­ir­byggja árásir með drónum í einka­eigu. Alrík­is­lög­reglan í sam­starfi við lög­reglu­yf­ir­völd í ein­staka ríki eru að und­ir­búa hátækni­legt örygg­is­kerfi til að geta betur mætt dróna­árásum. Þetta hefur frétta­stofan Reuters eftir heim­ilda­mönnum sínum.

Banda­rísk stjórn­völd eru sögð hafa áhyggjur af árásum með drónum í einka­eigu eftir að mynd­bönd fóru að birt­ast á vefnum sem sýna dróna sem breyttir hafa verið til að bera og skjóta úr skamm­byssum. Sak­sókn­ari í Connecticut hefur eitt slíkt mál til rann­sóknar en í júlí er 18 ára piltur tal­inn hafa skotið fjórum skotum úr skamm­byssu áfastri á dróna.

https://youtu.be/FI--wFfipvA

Kerfið sem lög­reglan er að útbúa benir örbylgjum að drón­anum sem ruglar boðin frá honum og til eig­and­ans. Flestir drónar eru for­rit­aðir þannig að ef sam­band við eig­anda tap­ast lendir hann sjálf­krafa á fyr­ir­fram ákveðnum hnitum.

Lög­reglan í New York próf­aði tækn­ina á Time Square á nýj­ársnótt, þegar torgið var fullt af fólki. Vegna þess hversu mikið af útstend­ingum fjöl­miðla og öðrum bylgjum voru í loft­inu mistókst til­raunin.

Fjöldi óleyfi­legra dróna­fluga í Banda­ríkj­unum hefur marg­fald­ast á und­an­förnum árum í takti við vin­sældir þess­ara nýju tækja. Áhyggjur stjórn­valda vestra eru ekki síður byggðar á hætt­unni sem þessi tæki gætu skapað fyrir far­þega­flug.

Vitað er um mörg dæmi þess að drónar kom­ist í hættu­legt návígi við flug­vélar í flug­taki eða lend­ingu auk þess sem að þessi tæki hafa verið notuð til að smygla eit­ur­lyfjum yfir landa­mærin frá Mexíkó og ógnað öryggi for­seta Banda­ríkj­anna þegar ein­hver flaug drón­anum sínum yfir lóð Hvíta húss­ins í Washington.

Samkvæmt drögum að nýrri reglu­gerð um með­ferð dróna hér á landi verður bannað að fljúga drónum nærri lög­reglu­stöðvum, fang­elsum og opin­berum bygg­ingum eins og Bessa­staði. Reglu­gerðin verður byggð á dönskum reglum um með­ferð dróna en þar er bannað að fljúga drónum nærri her­stöðvum og kon­ungs­höllum. Þá verður bannað að fljúga drónum í eins og hálfs kíló­met­ers fjar­lægð frá flug­völlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár