21 COVID-19 smit greint um helgina

Tíu skip­verjar súráls­skips sem kom til Reyð­ar­fjarðar í gær eru í ein­angrun um borð í skip­inu eftir að hafa greinst með COVID-19. Fimm til sex ein­stak­lingar utan sótt­kvíar greindust inn­an­lands um helg­ina.

Um helg­ina var 21 ein­stak­lingur greindur með COVID-19 inn­an­lands, þar af fimm til sex utan sótt­kvíar. Frá þessu er greintí frétt RÚV. Af þessum 21 greindust tíu skip­verjar súráls­skips sem kom til Reyð­ar­fjarðar í gær. Hinir smit­uðu eru allir í ein­angrun um borð og aðrir í sótt­kví. Hefur svo verið frá komu skips­ins til hafnar að því er segir í til­kynn­ingu frá lög­reglu.

Samkvæmt frétt RÚV er kenn­ari í Laug­ar­nes­skóla meðal þeirra sem greindust með veiruna. Nú eru alls 80 nem­endur og fjórir kenn­arar skól­ans í sótt­kví. Gert er ráð fyrir því að sótt­kvíin standi í dag og á morgun og að allir sem um ræðir verði boð­aðir í sýna­töku á morgun, þriðju­dag.

Þetta kemur fram í orð­send­ingu til allra for­eldra og for­ráða­manna barna við skól­ann í morg­un­. Þar segir enn fremur að vonir standi til að skóla­hald verði aftur komið í eðli­legt horf á mið­viku­dag­inn. [links]

Þá segir í frétt RÚV að leik­menn tveggja knatt­spyrnu­liða karla, Stjörn­unnar og Fylkis, séu í sótt­kví eftir smit sem komu upp um helg­ina. Í frétt­inni er haft eftir Má Krist­jáns­syni, yfir­manni smit­sjúk­dóma­deildar Land­spít­ala að of snemmt sé að segja til um hvort fjórða bylgja far­ald­urs­ins sé haf­inn, það muni ráð­ast af fram­vindu dags­ins og morg­un­dags­ins.

Almanna­varnir hafa boðað til upp­lýs­inga­fundar klukkan 11 í dag þar sem farið verður yfir stöðu far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár