Jón Sigurðsson leiðir samstarfshóp gegn félagslegum undirboðum

Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og Seðla­banka­stjóri, hefur verið skip­aður for­maður sam­starfs­hóp gegn félags­legum und­ir­boðum.

Jón Sigurðsson.
Jón Sig­urðs­son. Mynd: Velferðarráðuneytið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur skipað Jón Sig­urðs­son sem for­mann sam­starfs­hóps gegn félags­legum und­ir­boðum. Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Samkvæmt frétt ráðu­neyt­is­ins hefur áhersla verið lögð á að tryggja sam­starf þeirra aðila sem eft­ir­lit hafa á inn­lendum vinnu­mark­aði til að tryggja að ef upp koma alvar­leg mál séu þau til lykta leidd og þeir sem brot­legir séu dregnir til ábyrgðar.

„Þannig megi draga úr líkum á því að atvinnu­rek­endur kom­ist upp með að brjóta gegn ákvæðum laga eða ganga gegn kjara­samn­ingum, jafn­vel ítrekað. Slík brot bitna illa á launa­fólki, auk þess sem þau geta grafið undan starf­semi ann­arra fyr­ir­tækja sem fara að lögum og fara að leik­reglum vinnu­mark­að­ar­ins um kaup, kjör og aðbúnað og spillt þannig for­sendum eðli­legrar sam­keppni. Hlutverk sam­starfs­hóps­ins er meðal ann­ars að leggja til leiðir sem væn­legar þykja til árang­urs í þessu skyni,“ segir í frétt­inni.

Með hópnum mun einnig starfa Oddur Ást­ráðs­son lög­maður, skip­aður af ráð­herra án til­nefn­ingar. Aðrir nefnd­ar­menn eru skip­aðir sam­kvæmt til­nefn­ingum ráðu­neyta, eft­ir­lits­stofn­ana, lög­reglu og skatta­yf­ir­valda, sam­taka atvinnu­lífs­ins, sveit­ar­fé­laga og stétt­ar­fé­laga.

Sam­starfs­hópnum er einnig ætlað að leggja til sam­eig­in­leg mark­mið eft­ir­lits­að­ila á vinnu­mark­aði og skil­greina mæli­kvarða til að meta árangur þeirra aðgerða sem lagðar verða til af hálfu hóps­ins.

Sam­starfs­hópnum er ætlað að skila ráð­herra skýrslu með nið­ur­stöðum sínum og til­lögum í byrjun febr­úar 2019, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár