Tchenguiz-dómurinn: Dómarinn tók enga efnislega afstöðu til meintra sakarefna

Í dómi bresks dóm­stóls í máli sem Vincent Tchenguiz hefur höfðað gegn slita­stjórn Kaup­þings, end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornton í Bret­landi (Grant Thornton UK) og nokkrum starfs­manna þess­arra aðila, sem birtur var í gær, er ekki tekið nein afstaða til efn­is­at­riða máls­ins heldur ein­ungis hvort rétt­ur­inn hafi lög­sögu yfir þeim sem stefnt var. Þetta tók dóm­ari máls­ins sér­stak­lega fram í nið­ur­stöðu sinni, sem var sú að lög­saga dóms­ins nái ekki yfir slitabú Kaup­þings en að hægt sé að fjalla um meintar sak­ar­giftir á hendur Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, for­manni skila­nefndar Kaup­þings, fyrir honum.

Kjarninn hefur dóm­inn undir höndum og hann er hægt að lesa í heild sinni hér.

Tchenguiz stefndi Grant Thornton í Bret­landi og tveimur starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, Kaup­þingi og Jóhann­esi Rúnari fyrir að hafa lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu. Hann vill fá 2,2 millj­arða punda, um 455 millj­arða króna, í bætur vegna þessa.

Til­gang­ur­inn, að sögn Vincent Tchenguiz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaupþing hefði ella ekki getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchenguiz. Hann telur að með þessu hafi Kaupþing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðslum, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

[caption id="attachment_13099" align="alignnone" width="649"] Vincent Tchenguiz vill fá 445 millj­arða króna í bætur.[/caption]

Segir Tchenguiz vera að reyna að tryggja sér óeðlilega ávinning


Í jan­úar fóru Kaupþing og Jóhannes Rúnar fram á að öllum kröfum á hendur þeim yrði vísað frá á grund­velli þess að breskir dóm­stólar hefðu ekki lög­sögu yfir þeim.

Vincent Tchenguiz vill fá 445 milljarða króna í bætur.
Vincent Tchenguiz vill fá 445 millj­arða króna í bætur.

Dómur und­ir­réttar í Bret­landi komst að þeirri nið­ur­stöðu í gær að lög­saga enskra dóm­stóla næði ekki yfir slitabú Kaup­þings, enda hefðu íslenskir dóm­stólar einir lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús. Dómari máls­ins komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að hægt væri að fjalla um sak­ar­giftir á hendur Jóhann­esi Rúnari fyrir dóm­stólum í Bret­landi. Það kemur hins vegar skýrt fram í nið­ur­stöðu dóm­ar­ans að ekki væri með neinum hætti verið að fjalla um efn­is­at­riði þeirra ásak­ana sem bornar hafi verið á Jóhannes Rúnar í þessum anga máls­ins.

Í til­kynn­ingu sem slita­stjórn Kaup­þings sendi frá sér í gær vegna máls­ins er haft eftir Jóhann­esi Rúnari að hann telji að kröfur Tchenguiz séu „lítt dulin til­raun Vincent Tchenguiz til að tryggja sjálfum sér og tengdum skuld­urum óeðli­legan ávinn­ing við slit Kaup­þings. Skuld þess­ara aðila við Kaupþing nemur meira en 143 millj­ónum sterl­ingspunda, sem jafn­gildir um 30 millj­örðum íslenskra króna. Skuldin er tryggð með per­sónu­legri ábyrgð Vincent Tchenguiz að fjár­hæð 10 millj­ónir sterl­ingspunda, sem jafn­gildir meira en 2 millj­örðum króna.“

Jóhannes Rúnar segir ásak­anir Tchenguiz á hendur sér vera fjar­stæðu­kenndar og að þær eigi sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. „Rann­sóknir erlendra lög­reglu­yf­ir­valda og hand­taka Vincent Tchenguiz eru ákvarð­anir sem teknar voru af þeim og á þeirra ábyrgð og hvorki ég né Kaupþing leit­uð­umst nokkru sinni við að koma slíkum aðgerðum í kring. Ég mun verj­ast öllum kröfum áður nefndra aðila af festu enda kröfur þeirra til­hæfu­lausar með öllu og allar sak­ar­giftir rangar. Ef Vincent Tchenguiz og tengdir aðilar kjósa að halda kröfum á hendur mér til streitu er ég þess full­viss að enskir dóm­stólar muni sýkna mig af öllum kröfum sem hafðar eru uppi á hendur mér.“

Auk þess kom fram í til­kynn­ing­unni að slitabú Kaup­þings muni fara fram á að Tchenguiz greiði allan máls­kostnað sem þegar er til fall­inn vegna stefnu á hendur því.

Vincent Tchenguiz horfir aðeins öðru­vísi á málið. Í til­kynn­ingu sem hann sendi frá sér í gær segir: „Rétt­ur­inn hefur fall­ist á að kröfur mínar er varða atburði sem áttu sér stað í Englandi og verða því rétti­lega bornir undir og leiddir til lykta af enskum dóm­stólum. Jóhannes Jóhanns­son, sem er með­limur í slita­stjórn Kaup­þings, þarf nú að skýra fyrir enskum dóm­stólum hlut­verk hans í því sem kom fyrir mig og fyr­ir­tækin mín og ég hyggst sækj­ast um áfrýj­un­ar­leyfi til að sjá til þess að mál Kaup­þings þurfi að fara fyrir enska dóm­stóla líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár