Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans

Kevin McCarthy mistókst fjórtán sinnum að tryggja sér meiri­hluta atkvæða þing­manna í kjöri til for­seta full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings. En það tókst í fimmt­ándu til­raun. Hans fyrsta verk gæti verið að ákveða póli­tíska fram­tíð George Santos.

Kevin McCarthy fagnar sigri. 15 atkvæðagreiðslur þurfti til áður en hann tryggði sér embætti þingforseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
Kevin McCarthy fagnar sigri. 15 atkvæða­greiðslur þurfti til áður en hann tryggði sér emb­ætti þing­for­seta full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings. Mynd: EPA

Þingmenn full­trúa­deild­ar­þings Banda­ríkja­þings vörðu tíma sínum í vik­unni í eitt verk­efni: Að kjósa þing­for­seta. Það tók fjóra daga og fimmtán atkvæða­greiðslur.

Patt­staða, óreiða og póli­tískt kaos af bestu gerð. Eða hvað?

Kevin McCarthy, þing­maður Repúblikana­flokks­ins frá Kali­forníu, er nýr þing­for­seti full­trú­ar­deild­ar­innar. Hann hefur setið á þingi frá 2006 og hefur leitt minni­hluta repúblik­ana í full­trúa­deild­inni síð­ustu fjögur ár.

„Þetta var auð­velt, ha?“ sagði brosmildur McCarthy í fyrstu ræðu sinni sem þing­for­seti og aug­ljóst að þungu fargi var af honum létt.

Repúblikanar tryggðu sér nauman meiri­hluta í full­trúa­deild­inni í kosn­ing­unum í nóv­em­ber en þingið fór hægt af stað í upp­hafi árs þar sem inn­an­flokkserjur og átök innan þing­flokks repúblik­ana tókst ekki að sam­mæl­ast um þing­for­seta.

164 ár síðan svipuð staða var uppi

Það tókst loks á föstu­dags­kvöld. Þetta er í fimmt­ánda sinn í Í 234 ára sögu full­trúa­deild­ar­innar sem fleiri en eina umferð þarf til að kjósa þing­for­seta og aðeins í sjö þeirra þurfti fleiri en tíu umferðir, líkt og nú.

Fara þarf 164 ár aftur í tím­ann, til árs­ins 1859, fyrir banda­ríska borg­ara­stríðið, til að finna sam­bæri­lega stöðu, þegar 44 umferðir þurfti til að kjósa þing­for­seta.

Metið er hins vegar frá 1855, í upp­hafi 34. þings full­trú­ar­deild­ar­innar, þegar 133 atkvæða­greiðslur um þing­for­seta þurfti til og stóðu yfir í tvo mán­uði. 1855 og 1859 mynd­að­ist patt­staða vegna deilna um þræla­hald í Banda­ríkj­unum, sem leiddi til borg­ara­stríðs­ins. Staðan er aðeins önnur nú.

Repúblikanar skipa 222 af 435 þing­sætum og í fyrstu 11 atkvæða­greiðsl­unum tókst McCarthy mest að tryggja sér 203 atkvæði, í fyrstu tveimur umferð­unum, en meiri­hluta greiddra atkvæða þarf til að ná kjöri þing­for­seta. Ef allir þing­menn greiða atkvæða þarf því 218 atkvæði, ann­ars nægir að fá ein­faldan meiri­hluta.

Demókratar héldu tryggð við sinn leið­toga, Hakeem Jeffries, þing­mann Demókra­ta­flokks­ins fyrir New York-ríki. Þetta er í fyrsta sinn sem svartur maður leiðir demókrata í full­trúa­deild­inni. Jeffries fékk 212 atkvæði í öllum atkvæða­greiðsl­unum fimmtán.

Stuðningsmenn Trump sem vilja leiðrétta „sögulegt óréttlæti“

Í fyrstu ell­efu atkvæða­greiðsl­unum voru 20 þing­menn Repúblikana­flokks­ins sem vildu ekki greiða McCarthy atkvæði sitt. Um er að ræða fámennan hóp yst til hægri í flokknum, stuðn­ings­menn Donalds Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta. Trump fékk meira að segja greitt atkvæði, aðeins eitt þó, í einni atkvæða­greiðsl­unni, frá Matt Gaetz, þing­manni repúblik­ana fyrir Flórída. Sjálfur hvatti Trump þing­menn til að styðja McCarthy.

And­stæð­ingar McCarthy innan flokks­ins segj­ast vilja leið­rétta „sögu­legt órétt­læti“ og vilja þeir veita almennum þing­mönnum aukið vald yfir þróun laga­setn­ingar. Meðal breyt­inga sem þeir krefj­ast er að almennir þing­menn geti lagt fram breyt­ingar á laga­frum­vörpum sem lögð eru fyrir þing­menn. Auk þess vilja þeir að nægj­an­legt sé að einn þing­maður lýsi yfir van­trausti á þing­for­seta svo hægt sé að greiða atkvæði um hvort víkja eigi honum úr emb­ætti.

Með sjálfstraustið í botni

Eftir ell­eftu atkvæða­greiðsl­una á fimmtu­dags­kvöld var þing­fundi slitið. McCarthy mætti svo með sjálfs­traustið í botni á föstu­dag þegar þing­fundi var fram haldið með tólftu atkvæða­greiðsl­unni. McCarthy ræddi við and­stæð­inga sína milli þing­funda og tjáði blaða­mönnum að sam­ræð­urnar hefði borið árangur.

McCarthy jók stuðn­ing sinn í tólftu atkvæða­greiðsl­unni þegar hann fékk 213 atkvæði en Jeffries 211. Aðrir fengu sjö atkvæði. Í fyrsta sinn tókst McCarthy að fá fleiri atkvæði en Jeffries en það dugði ekki til.

Þá var komið að þrett­ándu umferð­inni. Þar bætti McCarthy við sig einu atkvæði en það gerði Jeffries einnig. 214 gegn 212. Jim Jordan, þing­maður Repúblikana­flokks­ins, fékk sex atkvæði.

Þingmaðurinn sem vildi Trump sem þingforseta olli usla

Í fjórt­ándu umferð­inni fékk McCarthy 216 atkvæði, akkúrat helm­ing af þeim 432 sem greidd voru. Hann vant­aði því eitt atkvæði. Einnig hefði dugað ef einn þing­maður til við­bótar hefði skráð sig fjar­ver­andi. McCarthy hafði samið við Getz, þing­mann­inn frá Flórída sem kaus Trump í einni umferð­inni, að skrá sig fjar­ver­andi en á síð­ustu stundu meld­aði hann sig við­stadd­ann en greiddi ekki atkvæði. Það varð til þess að McCarthy tóks ekki að tryggja sér sig­ur­inn.

Mikil ókyrrð mynd­að­ist í þingsalnum eftir fjórt­ándu umferð­ina og mun­aði litlu að til slags­mála kæmi milli Getz og Mike Rogers, þing­manns frá Alabama og stuðn­ings­manns McCarthy, sem var ekki hrif­inn af upp­á­tæki Getz.

McCarthy var hins vegar ekki af baki dott­inn og fór sig­ur­viss inn í fimmt­ándu umferð­ina. Þar fékk hann 216 atkvæði sem dug­aði þar sem 428 greiddu atkvæði. Sigurinn var loks í höfn.

Stjórn­mála­skýrendur eru sam­mála um að sig­ur­inn hafi þó verið dýr­keyptur. Með því að tryggja sér sæti þing­for­seta þurfi hann að færa litlum en rót­tækum og jafn­vel öfga­fullum hópi í flokknum ákveðin völd, svo sem sæti í mik­il­vægum þing­nefndum, meðal ann­ars alls­herj­ar­nefnd­inni sem hefur sterkt dag­skrár­vald og er áhrifa­mikil þegar kemur að fjár­laga­gerð. Þá gekk sú breyt­ing í gegn að nú mun einn þing­maður geta lagt fram van­traust­s­til­lögu á þing­for­seta svo hægt sé að greiða atkvæði um hvort víkja eigi honum úr emb­ætti.

En hvað með Santos?

Í gegnum allt ferlið gat McCarthy treyst á stuðn­ing einn þing­manns en ekki er víst að McCarthy kæri sig um stuðn­ing­inn. En hann skipti máli. Þing­mað­ur­inn nýkjörni, George Santos, var kjör­inn á þing fyrir New York en blaða­menn New York Times afhjúp­uðu Santos rétt fyrir jól. Hvorki menntun hans né starfs­reynsla sem hann til­tekur á fer­il­skrá sinni er sönn.

Santos hefur við­ur­kennt að hafa hvorki unnið fyrir fjár­fest­inga­bank­ann Goldman Sachs né Citigroup. Þá við­ur­kenndi hann einnig að hafa ekki lokið háskóla­prófi þó það komi fram á fer­il­skrá hans. Í kosn­inga­bar­átt­unni sagð­ist Santos vera gyð­ingur en hið rétta er að hann er kaþ­ólikki. Santos útskýrði mál sitt með því að segj­ast vera „gyð­ing­legur“ þar sem slíkan bak­grunn væri að finna í móð­ur­fjöl­skyldu hans.

Lygar Santos eru nú rann­sak­aðar sem glæp­sam­legt athæfi af hér­aðs­sak­sókn­ara í Nassau-sýslu í New York ríki. Santos við­ur­kennir að hafa fegrað feril sinn og gert mis­tök en hann ætlar ekki að segja af sér þing­mennsku. „Ég er ekki glæpa­maður.“

Santos veitti Fox News við­tal nýverið þar sem hann ræddi við Tulsi Gabbard, fyrr­ver­andi þing­mann Demókra­ta­flokks­ins. Gabbard spurði Santos meðal ann­ars hvort hann skamm­að­ist sín ekki? Santos svar­aði ekki en sagð­ist „geta sagt það sama um Demókra­ta­flokk­inn og Joe Biden Banda­ríkja­for­seta sem hefur verið að ljúga að banda­rísku þjóð­inni í 40 ár“.

Þó nokkrir þing­menn Demókra­ta­flokks­ins hafa kraf­ist að þing­for­seti efni til atkvæða­greiðslu um brott­rekstur Santos, sjái hann ekki að sér og segi sjálf­vilj­ugur af sér.

Nú þegar þing­for­seti hefur loks verið kjör­inn mun koma í ljós hvort meðal fyrstu verka full­trúa­deild­ar­innar verður að taka ákvörðun um póli­tíska fram­tíð Santos.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár