„Ég segi þeim að vera þolinmóð og að Ísland sé á leiðinni“

Sami Shaheen á fimm börn sem eru föst á Gaza, sá yngsti Mohammed er 4 ára. Þau eru ásamt mömmu sinni í Rafah þar sem sprengjum rignir yfir, svöng og hrædd. Sami hefur misst systur sína og börnin hennar fjögur og hefur ekki heyrt rödd for­eldra sinna í 120 daga. Sami sagði við börnin sín að vera þol­in­móð því ein­hver frá Íslandi væri á leið­inni að ná í þau en þau trúðu honum ekki.

„Þau eru að bíða eftir ykkur. Herinn mun ráð­ast inn í Rafah. Ég mun missa þau. Gerið það,“ segir Sami Shaheen í sam­tali við Heim­ild­ina en konan hans og fimm börn eru stödd í Rafah borg, skammt frá landamæra­stöð­inni að Egypta­landi þar sem nú rignir sprengjum. Enn hafa íslensk stjórn­völd ekki ákveðið hvort eða hvenær þau senda íslenskan full­trúa til Egypta­lands til að greiða leið um hund­rað dval­ar­leyf­is­hafa yfir landa­mærin svo þau geti sam­ein­ast fjöl­skyldum sínum á Íslandi. Þrjár íslenskar konur hafa lagt leið sína til Egypta­lands til að koma fólki frá Gaza og hafa nú þegar hjálpað konu og þremur sonum hennar. Þær hafa lýst því yfir að það sé þeim ómögu­legt að bjarga „öllum á einu bretti“ en stjórn­völd geti það hins vegar. 

Benjamin Net­anjahú hefur sigað her­sveitum sínum að Rafah, þar sem meira en helm­ingur íbúa Gaza, rúm­lega milljón manna, hefur leitað skjóls eftir …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“

Mest lesið undanfarið ár