Hlaðvarp Kjarnans: Af gervigreind, handbolta og ekki-ráðherrum

Hlaðvarp Kjarnans var stút­fullt af áhuga­verðu og fróð­legu efni í vik­unni. Hér eru allir þætt­irnir.

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, var gestur Tæknivarpsins á föstudaginn.
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól­ans í Reykja­vík, var gestur Tækni­varps­ins á föstu­dag­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöl­breyttir þættir birt­ast í hlað­varps­straumi Kjarnans í hverri viku. Fimm þættir fóru í loftið í vik­unni. Á næstu vikum mun þátt­unum fjölga á ný þegar vor­dag­skrá Hlað­varps Kjarnans verður keyrð í gang. Nánar um það síðar.

Hægt er að hlusta á þætt­ina hér á vefnum eða ger­ast áskrif­andi að hlað­varps­straumnum í öllum helstu podcast-öppum í snjall­tækj­um. Við heitum Hlað­varp Kjarn­ans á iTu­nes. Ann­ars er hægt að fylgja hlekknum hér.

[adspot]

Tæknivarpið

Tæknifæri gervigreindar eru óendanleg

Ari Kristinn Jónsson, doktor í tölv­un­ar­fræði frá Stanford-háskóla og rektor Háskól­ans í Reykja­vík, er gestur Tækni­varps­ins þessa vik­una. Í dokt­ors­nám­inu lagði hann áherslu á að skoða hvernig hægt væri að hjálpa tölvum að taka ákvarð­anir. Hann ræðir um gervi­greind og starfs­feril sinn í þætti dags­ins en áður en hann varð rektor HR starf­aði hann hjá Geim­vís­inda­stofnun Banda­ríkj­anna (NASA) við þróun geim­rann­sókna með hjálp tölva og gervi­greindar.

Mark­miðið með spjall­inu við Ara Kristinn var að líta aðeins lengra inn í fram­tíð­ina en hvenær næsti iPhone-sími kemur.

Hismið

Handbolti og snyrtivörur karla

Í Hismi vik­unnar fara þeir Árni og Grétar yfir við­burða­ríka viku hjá Árna, sem fór beint upp á fæð­ing­ar­deild eftir síð­asta þátt. Þá ræða þeir HM í hand­bolta sem virð­ist fara fram hjá flestum og pirr­ing lands­liðs­manna við fjöl­miðla. Árni deilir svo nið­ur­stöðum útektar sem hann gerði á snyrti­vöru­mark­aðnum fyrir karl­menn.

Kvikan

Reynslulaus fjölmiðlamaður óskar eftir ráðherraembætti

Kergjan í Sjálf­stæð­is­flokknum vegna mynd­unar nýrrar rík­is­stjórnar og ráð­herra­vals hefur verið opin­beruð með tvennum hætti. Annars vegar hefur Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi, sagt að það hljóti að hafa verið mis­tök sem verði leið­rétt að hann hafi ekki verið gerður að ráð­herra. Hins vegar líkti Morg­un­blaðið stjórn­ar­sátt­mál­anum við eitt­hvað sem Dagur B. Egg­erts­son hefði samið. Og Morg­un­blaðið þolir ekki Dag B. Egg­erts­son. Ruðn­ings­á­hrifin á hús­næð­is­mark­aði sem er að þurrkast upp, eitt skref áfram með opnun rík­is­bók­halds og tvö skref aftur á bak með því að ráð­herrar mæta ekki fyrir þing­nefndir og svo auð­vitað Brexit frá sjón­ar­hóli Skota.

Þetta og allt hitt sem skiptir öllu máli í Kviku (ekki bank­ans) vik­unnar. Umsjón­ar­menn eru að venju Þórunn Elísabet Boga­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son.

Markaðsvarpið

Finnum verðmætin í gögnunum

Brynjólfur Borgar Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Datalab, er í við­tali í Mark­aðsvarp­inu þessa vik­una. Datalab er nýtt íslenskt fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í að aðstoða við að finna verð­mæti sem fel­ast í gögnum fyr­ir­tækja. Umsjón­ar­menn þátt­ar­ins eru Bjarki Pét­urs­son og Trausti Har­alds­son.

Rætt er um þann ávinn­ing sem getur skap­ast með því að nota betur þau gögn sem fyr­ir­tæki hér á Íslandi eiga nú þegar. Einnig er farið inn á nýjar reglur um per­sónu­vernd sem taka gildi árið 2018 og hvað þarf að hafa í huga í til­liti til þeirra.

Brynjólfur ræðir um mis­mun­andi lausnir sem stjórn­endur fyr­ir­tækja hafa nýtt sér við að nota núver­andi gögn betur eins og að kom­ast að því hvaða við­skipta­vinir eru lík­leg­astir til að hætta og bera kennsla á verð­mæt­ustu við­skipta­vin­ina.

Sparkvarpið

Rómantíkin býr í neðri deildunum á Englandi

Í þætti vik­unnar fara Þorgeir og Þór­hallur yfir stöðu mála í neðri deild­unum á Englandi. Þeir taka létta yfir­ferð á lið­unum og töl­uðu um menn­ing­una í Championship-deild­inni. Þá töl­uðu þeir helst um hvernig lið bregð­ast við því að falla úr ensku úrvals­dei­dinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár