Þeir sem styðja Framsókn líklegastir til að búa í eigin húsnæði

Þeir sem styðja rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru lík­legri til þess að búa í eigin hús­næði en þeir sem styðja hana ekki. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. 78 pró­sent stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar búa í eigin hús­næði en 66 pró­sent þeirra sem styðja hana ekki.

83 pró­sent þeirra sem styðja Fram­sókn­ar­flokk­inn búa í eigin hús­næði og 78 pró­sent þeirra sem styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Eitt helsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var að leið­rétta verð­tryggð hús­næð­is­lán, og leið­rétt­ingin svo­kall­aða var fram­kvæmd af rík­is­stjórn­ar­flokk­unum.

77 pró­sent þeirra sem styðja VG búa í eigin hús­næði og 74 pró­sent stuðn­ings­manna Sam­fylk­ing­ar­innar. 53 pró­sent Bjartrar fram­tíðar og 54 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata búa í eigin hús­næði.

Eldra fólk býr í eigin húsnæði, unga fólkið leigir og býr hjá foreldrum

Fólk yfir fimm­tugu er lík­legra til að búa í eigin hús­næði en aðrir ald­urs­hópar. Til dæmis sögð­ust 94 pró­sent fólks á aldr­inum 50 til 67 ára búa í eigin hús­næði en 77 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 30 til 49 ára og 28 pró­sent þeirra sem eru 18 til 29 ára.

Í yngsta ald­urs­hópnum segj­ast 36 pró­sent vera á leigu­mark­aði og jafn­stór hópur býr í for­eldra­húsum.

Meðal þeirra sem eru 30 til 49 ára er hlut­fall eig­enda orðið 77 pró­sent, en 22 pró­sent eru á leigu­mark­aði.

Tekjulægsta fólkið á leigumarkaði

Meðal þeirra sem hafa heim­il­is­tekjur undir 250 þús­und krónum á mán­uði býr 30 pró­sent í eigin hús­næði, en stærsti hóp­ur­inn, 45 pró­sent, er á leigu­mark­aðnum. 24 pró­sent þessa hóps býr í for­eldra­húsum.

54% þeirra sem hafa 350 til 399 þús­und krónur í tekjur á mán­uði búa í eigin hús­næði en 26 pró­sent eru á leigu­mark­aði og 19% í for­eldra­húsum.

Hlutfall þeirra sem búa í eigin hús­næði hækkar upp­fyrir 70 pró­sent í næstu tekju­flokkum og fer í 83 pró­sent hjá þeim sem eru með 800 til 999 þús­und á mán­uði í heim­il­is­tekjur.

Athygli vekur að ell­efu pró­sent þeirra sem eru með yfir milljón á mán­uði í heim­il­is­tekjur á mán­uði segj­ast búa í for­eldra­húsum. 11 pró­sent þessa hóps er á leigu­mark­aði og 78 pró­sent eru í eigin hús­næði.

Færri í eigin húsnæði en áður

MMR gerði aðra könnun á hús­næði fólks árið 2013 og séu kann­an­irnar bornar saman hefur þeirm sem búa í eigin hús­næði fækkað um þrjú pró­sent og þeim sem búa í leigu­hús­næði fjölgað um tvö pró­sent. Báðar þessar breyt­ingar eru þó innan vik­marka.

Vikmörk í könn­un­inni eru 3,1 pró­sent, sem þýðir að miðað við 1000 svar­endur geti raun­veru­legar tölur verið á bili sem er 3,1 pró­sentum lægra til 3,1 pró­sentum hærra en í könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár