Undrast á kalli til frekari aðgerða vegna kjararáðs

Fjár­mála­ráð­herra seg­ist hafa átt frum­kvæði að því að end­ur­skoða alla umgjörð vegna kjara­ráðs og undrar sig á kalli til frek­ari aðgerða vegna þess.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra undr­ast á ósætti vegna breyt­inga á lögum kjara­ráðs sem leiddi til tug­pró­senta launa­hækk­ana rík­is­for­stjóra. Enn fremur segir hann lítið sem ekk­ert svig­rúm á almenna mark­aðnum til mik­illa launa­hækk­ana. Þetta kemur fram í við­tali fjár­mála­ráð­herra í Morg­un­blað­inu í dag.

Undrast á kalli til frekari aðgerða vegna kjararáðs

Í við­tal­inu segir Bjarni sjálfur hafa átt mikið frum­kvæði að því að end­ur­skoða alla umgjörð um kjara­ráð og undr­ast á kalli til frek­ari aðgerða vegna þess. Þar minn­ist hann á að ráðið hafi verið lagt niður með frum­varpi sem ráðu­neyti hans samdi, auk þess sem nýtt frum­varp um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag þess­ara mála hafi verið lagt fram.

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um frum­varp fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um lokun kjara­ráðs, en með því flutt­ist ákvörð­un­ar­vald um starfs­kjör for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja frá kjara­ráði til stjórna fyr­ir­tækj­anna. Flestar stjórnir hækk­uðu laun for­stjór­anna um tugi pró­senta, þar á meðal 60% launa­hækkun for­stjóra Lands­virkj­unar, þrátt fyrir að fyr­ir­mæli stjórn­valda um að stilla launa­hækk­anir í hóf.

Lítið sem ekkert svigrúm til launahækkana

Í við­tal­inu segir Bjarni einnig það vera engin tíð­indi fyrir sig að svig­rúm til launa­hækk­ana sé lítið sem ekk­ert, það liggi fyrir og hafi lengi gert það. „Það er auð­vitað með ólík­indum að heyra verka­lýðs­leið­toga að því er virð­ist tala gegn betri vit­und um að það sé svig­rúm á almenna mark­aðnum til tuga pró­senta launa­hækk­ana – kannski 20-30% launa­hækk­ana – og af því að það hafi ekki skilað verð­bólgu í for­tíð­inni muni það ekki gera það í fram­tíð­inni,“ bætir fjár­mála­ráð­herra við.

Vill lækka tryggingagjald og neðra skattþrepið

Samkvæmt Bjarna hefur kjara­þró­unin í land­inu sjaldan verið jafn­já­kvæð og þessi miss­eri. Við því bætir hann: „Maður saknar þess stundum í tali laun­þega­hreyf­ing­ar­innar að menn eigni sér eitt­hvað af þeim mikla árangri sem hefur náðst á und­an­förnum árum. Hann er sögu­lega gríð­ar­legur en tónn­inn er eins og hér hafi verið mikil kjara­skerð­ing, allt sé í upp­námi og þol­in­mæðin sé á þrotum. Ég verð að segja að það er und­ar­legt að heyra þennan tón.“

Aðspurður um aðgerðir í kjara­málum nefnir Bjarni lækk­anir á trygg­inga­gjaldi í skrefum, ann­ars vegar um næstu ára­mót og hins vegar ári síðar. Einnig bendir hann á fyr­ir­hug­aða lækkun neðra skatt­þreps­ins, sem minnst var á í stjórn­ar­sátt­mál­anum, en það muni ger­ast í áföngum á kjör­tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár