Ásmundur fer hálfa leið gegn Ragnheiði Elínu

Ásmundur Frið­riks­son fer hálfa leið gegn Ragn­heiði Elínu og Unni Brá og býður sig fram í 1. til 2. sæti Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi. Hann ætlar að halda áfram á sömu braut, sem hefur verið harð­lega gagn­rýnd í útlend­inga­málum.

Ásmundur Frið­riks­son alþing­is­maður býður sig fram í fyrsta til annað sætið hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Suð­ur­kjör­dæmi í próf­kjör­inu sem fer fram 10. sept­em­ber næst­kom­andi. Hann til­kynnti þetta í dag.

Fyrir eru Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir þing­maður í fyrsta og öðru sæti. Þær ætla báðar að sækj­ast eftir end­ur­kjöri og því fer Ásmundur hálf­part­inn gegn þeim báðum með því að gefa kost á sér í fyrsta og annað sætið.

Ásmundur greindi frá því fyrir nokkrum vikum að hann hefði fengið margar áskor­anir um að bjóða sig fram til for­ystu í kjör­dæm­inu, en einnig hafði verið skorað á Elliða Vign­is­son, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum, að gera það. Elliði gaf það út í síð­ustu viku að hann myndi ekki gefa kost á sér í próf­kjör­inu.

„Ég lýsi því yfir að ég er til­bú­inn til að taka að mér for­ystu­hlut­verk á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í haust ef ég fæ til þess stuðn­ing, en af hóg­værð sæk­ist ég eftir fyrst til öðru sæti,“ segir Ásmundur í yfir­lýs­ingu. Hann segir að hann hafi sýnt það að hann láti verkin tala og standi með sann­fær­ingu sinni „eins og fram hefur komið í mörgum málum. Ég mun halda áfram á þeirri braut sem ég hef markað mér og vinna með fólk­inu og atvinnu­líf­inu í Suð­ur­kjör­dæmi,“ segir hann jafn­framt.

Markað sér sérstöðu í útlendingamálum

Meðal þeirra mála þar sem Ásmundur hefur fylgt sann­fær­ingu sinni, þvert á flokkslínu, eru útlend­inga­mál, en hann var einn tveggja þing­manna sem ekki greiddi atkvæði með nýjum útlend­inga­lögum þegar þau voru sam­þykkt í þverpóli­tískri sátt á Alþingi í byrjun sum­ars.

Hann sagði breyt­ing­arnar á lög­unum miða að því að auð­velda fólki aðgang að land­inu. „Það er slakað á kröfum til fólks sem hingað kemur og þeim sem geta ekki fram­vísað papp­írum um að þau sýni fram á rétt­mæt­i ­stað­hæf­inga sinna. Það er slakað á kröfum varð­andi mögu­leika ­yf­ir­valda til að ganga úr skugga um hvort ákveðnar stað­hæf­ing­ar eigi við rök að styðj­ast, eins og til dæmis varð­andi ald­ur.“ Þá sé hvergi getið um öryggi lands­ins.

Hann sagði einnig þegar þessi mál voru rædd að mik­il­vægt væri að geta leyst úr málum „meints flótta­fólks og hæl­is­leit­enda“ hratt og örugg­lega. „Æski­leg­t væri að það færi aldrei út af þeim stöðum sem það kem­ur til með flutn­ings­tæki til lands­ins, skipi eða flug­vél. Þá er einnig æski­legt að yfir­völd hefðu þann mann­afla og réðu yfir­ þeim úrræðum að geta vísað fólki sem sýnir ekki fram á full­nægj­andi heim­ildir til rétt­mæti þess að fá að dvelj­ast hér í landi út þegar í stað.“

Þá sagði Ásmundur að vel eigi að taka á móti þeim sem komi til Íslands í „rétt­mætum erind­um“. Umsækj­endum um hæli standi til boða hús­næði, lág­marks­fram­færsla og nauð­syn­leg heil­brigð­is­þjón­usta, þar á meðal vegna geð­rask­ana. „Þetta er auð­vitað vel boðið og mun betri kjör en við Íslend­ingar búum ­sjálfir við. Hér er hús­næð­is­skort­ur, við erum að sam­þykkja hér lög í þing­inu um almennar íbúð­ir, að byggja 2.300 íbúð­ir ­fyrir þá sem minnst hafa á milli hand­anna. Eldri borg­arar fá ekki inn á dval­ar­heim­ilum og þeir sem þar búa búa við þau kjör að fá dag­pen­inga, rúmar 60 þús­und krónur á mán­uði og þurfa að ­borga lækn­is­þjón­ustu og heil­brigð­is­þjón­ustu. Varla eru það þau kjör sem við ætlum að bjóða þeim útlend­ingum sem hing­að vilja kom­a.“

Ásmundur hefur oft áður tjáð sig um útlend­inga­mál og oft þannig að það hafi verið gagn­rýnt. Um miðjan jan­úar spurði Ásmundur að því á Face­book síðu sinni hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­að­ur, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Hann sagð­ist í kjöl­farið vera að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði hann í við­tali við Vísi.

Hann var í kjöl­farið gagn­rýndur mikið bæði innan flokks og utan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár