Fleiri tungumál deyja en internetið tileinkar sér

Tungumál deyja hraðar út en bætt er við á inter­netið. Nokkur af stærstu vef­fyr­ir­tækjum í heim­inum hafa lagt mikið kapp á að bæta við fleiri tungu­málum sem hægt er að lesa vefi þeirra á. Google fer þar fremst í flokki bæði hvað varðar tungu­mála­skiln­ing og fjölda tungu­mála, eftir að hafa bætt við tíu asískum og afrískum þýð­ingum á vef sinn í lok árs 2014.

Quartz tók saman gögn frá vefnum Ethnologue, þar sem finna má gögn um meira en 7.000 lif­andi tungu­mál um allan heim, og skýrslu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum um hnignun og útdauða tungu­mála. Í skýrsl­unni má lesa að árið 2012 hafi lif­andi tungu­mál verið um 8.000 en í ár eru þau aðeins um 7.100.

Á sama tíma hefur fjöldi tungu­mála í notkunn í leit­ar­vélum Google og á alfræði­vefnum Wikipediu nærri staðið í stað. Staðfærð tungu­mál, þe. áætl­aður fjöldi tungu­mála sem töluð er á ver­ald­ar­vefnum, hafa staðið í stað og eru enn um 500 eins og árið 2012.


Það kann hins vegar að vera vill­andi að tala um fjölda tungu­mála án þess að átta sig á því hversu margir tala þau. 40,2 pró­sent alls mann­kyns tala átta tungu­mál, eða 0,1 pró­sent allra tungu­mála í heim­inum. Þessi átta tungu­mál eru kín­verska, spænska, enska, hindí, arab­íska, portú­gaska, bengalska og rúss­neska. Í þess­ari upp­taln­ingu verður hins vegar að minn­ast á að fjöl­margar mis­mu­anndi mál­ískur má finna af bæði kín­versku og arab­ísku.

Samkvæmt Ethnologue eru meira en fimmt­ungur allra tungu­mála heims­ins „í vand­ræðum“ (e. in trouble) sem þýðir að þeim sem tala tungu­málin fækkar. 13 pró­sent allra tungu­mála heims­ins eða 916 eru að deyja út sem þýðir að tungu­málin verða vart arf­leidd næstu kyn­slóð.

Ef fjöldi tungu­mála er hættur að aukast eftir að um 500 mál hafa kom­ist á vef­inn hefur spá ung­verska tungu­mála­stærð­fræð­ings­ins András Kornai ræst. Í rann­sókn sinni frá 2013 spáði hann því að aðeins fimm pró­sent tungu­mála heims­ins gætu lifað af á vefnum. Þessi fimm pró­sent tungu­mála tala um það bil sex millj­arðar manna eða um það bil 94 pró­sent alls mann­kyns, sam­kvæmt töl­fræði Ethnologue.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár