Breyta lögum um fasteignalán - fyrstu kaupendur fái meira svigrúm

Fjár­mála­eft­ir­litið mun setja reglur um það hversu hátt veð­setn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­lána má vera, eftir að hafa fengið til­mæli um það frá fjár­mála­stöð­ug­leika­ráði, sam­kvæmt frum­varps­drögum að nýjum lögum um fast­eigna­lán, sem fjár­mála­ráðu­neytið birtir í dag.

Verði þetta að lögum mun fjár­mála­eft­ir­litið geta sett reglur um að hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls lána nemi frá 60 til 90 pró­sent, og að hámarkið geti verið mis­mun­andi eftir lána­flokkum og hópum neyt­enda. Þannig er gert ráð fyrir því að fólki sem er að kaupa sína fyrstu fast­eign verði veitt meira svig­rúm en öðrum. Mörg Evr­ópu­lönd, þar á meðal öll hin Norð­ur­löndin, hafa þegar sett sér reglur af þessu tagi þótt hámarkið sé ólíkt eftir löndum.

Reglur af þessu tagi eru hugs­aðar sem stjórn­tæki til að koma í veg fyrir bólu­myndun á fast­eigna­mark­aði, verja heim­ili betur fyrir hættu á yfir­veð­setn­ingu ef fast­eigna­verð lækkar og sömu­leiðis verja lána­stofn­anir fyrir tapi ef eigna­verð lækkar. Þá á þetta að jafna út útlána- og fast­eigna­sveiflu, að því er fram kemur í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum. Þar kemur einnig fram að staðan í þessum málum á íbúða­lána­mark­aði sé góð, og veð­setn­ing­ar­hlut­fallið hjá lána­stofn­unum er á bil­inu 80 til 90 pró­sent að hámarki.

Breytingar á greiðslumati og uppgreiðslugjald lækkar


Samkvæmt frum­varps­drög­unum verður reglum um upp­greiðslu­gjöld líka breytt og þau lækkuð. Nú er það svo að upp­greiðslu­gjald er að hámarki eitt pró­sent en sam­kvæmt frum­varps­drög­unum munu lána­stofn­anir ekki mega rukka um meira en 0,2 pró­sent af fjár­hæð end­ur­greiðslu fyrir hvert heilt ár sem eftir er af bindi­tíma vaxta. Þessari breyt­ingu er ætlað að stuðla að því að fram­boð af lánum með föstum vöxtum auk­ist. „Tillögð breyt­ing mun leiða til lækk­unar á fjár­hæð upp­greiðslu­gjalda fast­eigna­lána með stutt fast­vaxta­tíma­bil, s.s. 3-5 ár og von­andi opna fyrir mögu­leika neyt­anda til að taka lán með föstum vöxtum til lengri tíma en fimm ára.“

Önnur breyt­ing sem gera á sam­kvæmt drög­unum er að ef lána­stofnun ákveður að veita ein­stak­lingum lán þrátt fyrir að nið­ur­stöður úr greiðslu­mati séu nei­kvæðar verður stofn­unin að útskýra þá ákvörðun og skjal­festa rök­stuðn­ing fyrir ákvörðun sinni. Lána­stofn­unum er heim­ilt sam­kvæmt núgild­andi lögum að veita fólki fast­eigna­lán þótt nið­ur­stöður greiðslu­mats séu nei­kvæðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár