Sigmundur Davíð: Þjóðarstoltið mikilvægt í fjárhagsvandræðum

Þjóð­arstolt er mik­il­vægt þegar kemur að því að takast á við ýmiss konar vanda­mál, þar með talin fjár­hags­leg vanda­mál eins og Icesave. Þetta sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í við­tali í þætt­inum Business Daily á BBC World Service í morgun. For­sæt­is­ráð­herr­ann var spurður um lík­indi með krepp­unni á Íslandi og í Grikk­landi í þætt­inum, þar sem því var varpað fram að margir teldu að Íslend­ingar hefðu við­haldið þjóð­arstolt­inu en Grikkir ekki.

Sig­mundur sagði þjóð­arstoltið mik­il­vægt. „Vegna þess að ef þú finnur til stolts gagn­vart sam­fé­lag­inu eða sög­unni þá hjálpar það fólki að standa saman við að takast á við erfið mál og jafn­vel standa frammi fyrir því sem kalla mætti hót­anir,“ sagði hann. Jafnvel mætti tala um ein­elti gagn­vart Íslandi í ein­hverjum til­vikum þegar kæmi að Icesave-málum.

Sig­mundur sagði að það hefði verið spurn­ing um þjóð­arstolt Íslend­inga að neita að borga fyrir Icesave. „Ég held að allir hafi verið sam­mála um að það ætti að borga inn­stæðu­eig­endum í Bret­landi og Hollandi til baka en að það ætti sá aðili sem bar ábyrgð, þrotabú bank­ans, að gera, eins og nú hefur gerst,“ sagði Sig­mundur.

„Það var alltaf ljóst að slita­búið hefði nægt fé til að borga inn­stæðu­eig­endum til baka vegna neyð­ar­lag­anna, sem höfðu í för með sér að inn­stæðu­eig­endur fengu for­gang. Það var gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir Breta og Hol­lend­inga,“ hélt Sig­mundur fram.

Ekki alltaf verið ljóst að til væri fé


Það hefur hins vegar ekki alltaf verið ljóst að nægar end­ur­heimtur yrðu í þrota­búi gamla Lands­bank­ans til að hægt væri að greiða for­gangs­kröfur til baka, þótt það sé nú orðið ljóst og hafi lengi verið talið lík­legt. Sig­mundur Davíð sagði sjálfur í grein eftir að EFTA-dóm­stóll­inn hafði kveðið upp sinn dóm, í jan­úar 2013, að „nú virð­ist loks öruggt að þrotabú Lands­bank­ans muni geta greitt allar for­gangs­kröfur í búið, þar á meðal allar kröfur vegna Icesave, einnig kröfur breskra sveit­ar­fé­laga og ann­arra lög­að­ila.“ Árið 2011 sagði hann í grein í Morg­un­blað­inu að sam­kvæmt samn­ingum sem þá voru á borð­inu ættu Íslend­ingar einir að bera þá miklu áhættu sem væri fyrir hendi. „Eignir þrota­bús­ins eru enn að mestu leyti áhættu­fjár­fest­ingar. Verði fram­hald á fjár­málakrís­unni í Evrópu mun verð­mæti þeirra falla mikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár