Efnahags- og viðskiptanefnd fær upplýsingar um stöðugleikaskilyrði í trúnaði

Upp­lýs­ingar um stöð­ug­leika­fram­lög og stöð­ug­leika­skil­yrði verða afhent nefnd­ar­mönnum í efna­hags- og við­skipta­nefnd á eftir.

Upp­lýs­ingar um stöð­ug­leika­fram­lög og stöð­ug­leika­skil­yrði verða afhent nefnd­ar­mönnum í efna­hags- og við­skipta­nefnd á eftir. Þetta kom fram í máli Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í svari hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi.

[links]Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Katrínu um sölu á hlutafé rík­is­ins í Arion banka á þriðju­dag, þegar kaup­réttur á hlutnum var virkj­aður af Kaup­skilum, félagi í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóð­irnir eru stærstu hlut­haf­arnir. Greiddu þeir um 23 millj­arða fyrir 13 pró­senta hlut rík­is­ins. Þá seldi Kaupskil rúm­lega 5 pró­senta hlut í bank­anum til fjölda sjóða, bæði inn­lendra og erlendra.

Logi sagði sölu­ferlið ein­kenn­ast af ógagn­sæi. „Örfáir ein­stak­lingar sem fáir vita hverjir eru fara með mjög mikla hags­muni í þessum málum.“

Katrín sagð­ist sam­mála því að um þessi mál þurfi að ríkja sem mest gang­sæi. Hlut­hafa­sam­komu­lagið hafi verið birt en rík­is­stjór­inin hafi óskað eftir því við Seðla­bank­ann að stöð­ug­leika­skil­yrðin verði birt sem og að ákveðið hafi verið að nefnd­ar­menn í efna­hags- og við­skipta­nefnd fái í trún­aði afhentar upp­lýs­ingar um bæði stöð­ug­leika­fram­lögin og -skil­yrðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár