Ríkið getur ekki neitað að selja hlut sinn í Arion banka

Ganga þarf frá kaupum Kaup­þings á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka í síð­asta lagi 21. febr­úar. Kaup­rétt­ur­inn er ein­hliða og ríkið getur ekki hafnað því að selja hlut­inn. Hann byggir á samn­ingi frá árinu 2009.

Gengið verður frá sölu á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka í síð­asta lagi 21. febr­úar. Kaupin byggja á nýt­ingu kaup­réttar sem settur var inn í samn­ing milli íslenska rík­is­ins og kröfu­hafa Kaup­þings um fjár­mögnun Arion banka sem gert var í sept­em­ber 2009. Umræddur kaup­réttur er ein­hliða og kaup­verðið er fyrir fram ákveðið. Alls mun Kaupþing greiða 23,4 millj­arða króna fyrir hlut­inn og íslenska ríkið getur ekki sagt nei við því til­boði.

[links]Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stað­festi þetta í ræðu­stóli Alþingis fyrir viku síðan. Auk þess hafa aðrir við­mæl­endur Kjarnans, sem komið hafa að gerð sam­komu­laga sem gerð hafa verið við kröfu­hafa Kaup­þings, stað­fest þennan skiln­ing. Bjarni sagði í and­svari við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, að þegar „ ríkið lagði til fjár­magn til að fjár­magna stofnun Arion banka á sínum tíma á árinu 2009 var veittur kaup­réttur að hlut rík­is­ins, þessum 13 pró­sent, án skil­yrða á fyr­ir­framá­kveðnu verði. Samkvæmt þeim kaup­rétti er það ein­hliða ákvörðun þeirra sem halda á kaup­rétt­inum að leysa hlut rík­is­ins til sín. Gagnvart því þarf engan stuðn­ing eða beiðni eða sam­þykki íslenska rík­is­ins.“

Undirbúningur fyrir skráningu á fullu

Salan verður loka­hnykkur í því sem má kalla síð­asta skrefið sem stigið verður í breyt­ingum á eign­ar­haldi Arion banka fyrir skrán­ingu bank­ans á markað, sem fyr­ir­huguð er á Íslandi og í Svíþjóð í apríl næst­kom­andi. Aðrar breyt­ingar sem orðið hafa á und­an­förnum dögum eru þær að tveir núver­andi eig­enda, Attestor Capital og Goldman Sachs, og 24 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra íslenskra sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja, keyptu 5,34 pró­sent hlut í vik­unni á 9,5 millj­arða króna. Þá var greint frá því í morgun að Arion banki hefði keypt 9,5 pró­sent hlut í sjálfum sér á 17,1 millj­arð króna. Á upp­gjörs­fundi með fjöl­miðla­mönnum, sem fram fór í dag, sagði Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, að hluta­féð yrði lík­leg­ast notað til þess að lækka hlutafé bank­ans. Ekki stæði til að selja það áfram.

[adspot]Hösk­uldur sagði einnig að salan til sjóð­anna 24 og tveggja eig­enda bank­ans hafi verið plan B. Augljóst er öllum að plan A var að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir kæmu inn í eig­enda­hóp Arion banka og keyptu um fimm pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóð­irnir höfn­uðu hins vegar allir til­boð­inu.

Eins og staðan er í dag er eign­ar­haldið á Arion banka því svona: Kaupþing, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Kaupskil, á 42,57 pró­sent hlut og er langstærsti eig­and­inn. Sá eign­ar­hlutur mun aukast um 13 pró­sent þegar Kaupþing gengur frá kaup­unum á eign­ar­hlut rík­is­ins á næstu dögum. Taconic Capital, Och-Ziff Capital Mana­gement Group, sjóðir í stýr­ingu Attestor Capital og Goldman Sachs, sem eiga líka ráð­andi hlut í Kaup­þingi, eiga sam­an­lagt 32,4 pró­sent beinan eign­ar­hlut í Arion banka. Bankinn sjálfur á svo 9,5 pró­sent hlut í sér. Þá eiga 24 sjóðir sem eru í stýr­ingu Stefnis, Lands­bréfa, Íslands­sjóða og Júpíter sam­tals 2,54 pró­sent hlut.

Vilja fá fleiri til að taka þátt í útrás Valitor

Á fund­inum í dag var einnig útskýrt hvað lægi á bak við þá hugsun að selja hlut í korta­fyr­ir­tæk­inu Valitor, sem er að fullu í eigu Arion banka. Við þá sölu yrði Valitor hlut­deild­ar­fé­lag en ekki dótt­ur­fé­lag og færi þar með út úr sam­stæðu­reikn­ingi Arion banka. Í ljósi þess að Valitor er með stærstan hluta umsvifa sinna erlendis, og hefur verið í örum vexti alþjóð­lega með upp­kaupum á erlendum fyr­ir­tækjum fyrir millj­arða króna, vill bank­inn fá fleiri með til að leiða þann erlenda vöxt. Núver­andi hlut­hafar Arion banka, erlendir sjóðir, hafa sýnt því áhuga og því hefur komið upp sú hug­mynd að Valitor verði aðgreint frá bank­anum og að hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu verði að hluta greidd út í formi arðs til hlut­hafa. Hösk­uldur sagði að ef að því yrði myndi Arion banki alltaf halda eftir að minnsta kosti 20 pró­sent hlut. Hann und­ir­strik­aði þó einnig að engin ákvörðun hafi verið tekin og að skiptar skoð­anir hafi verið um þessa aðgerð. Fulltrúi Banka­sýslu rík­is­ins í stjórn bank­ans hafi til að mynda lagst gegn því, líkt og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum.

Með því að kaupa hlut rík­is­ins í Arion banka, líkt og nú stendur til, þá munu stærstu eig­endur bank­ans hins vegar losna við það mót­læti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár