Heilsugæsla ókeypis í Bretlandi og Danmörku

Heim­sóknir til heim­il­is­lækna eru gjald­frjálsar í Danmörku og Bret­landi, á meðan að sjúk­lingar greiða fast gjald í Svíþjóð rétt eins og á Íslandi. Þetta kemur fram í stað­reynda- og sam­fé­lags­vakt Vís­inda­vefs­ins, sem kann­aði ummæli Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra í nýlegum umræðu­þætti á RÚV.

Kristján Þór sagði: „En ég hef skoðað þetta mjög víða. Ég hef hvergi rek­ist á neitt land hér í, ekki einu sinni næsta nágrenni við okkur, sem að við horfum nú mjög til, þar sem að heim­ilin greiða ekki ein­hvern þátt í heil­brigðis­kostn­aði.“

Ummæli Krist­jáns Þórs eru ekki ekki í full­yrð­inga­formi og ekki alveg ljóst nákvæm­lega hvað hann á við, og af þeim sökum hefur Stað­reynda­vakt Kjarnans ekki tekið afstöðu til þess­ara ummæla.

Stað­reynda- og sam­fé­lags­vakt Vís­inda­vefs­ins bendir á að það sé rétt hjá heil­brigð­is­ráð­herra ef hann á við það að ekk­ert heil­brigð­is­kerfi bjóði sjúk­lingum alla heil­brigð­is­þjón­ustu gjald­frjálsa. Kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga í hefð­bund­inni heil­brigð­is­þjón­ustu er alltaf ein­hver í öllum heil­brigð­is­kerfum. Hins vegar sé mjög mis­jafnt hversu mikil hún er og hvaða þjón­ustu sjúk­lingar taka þátt í að greiða.

„Þegar litið er til hlut­deildar sjúk­linga í heild­ar­kostn­aði við heil­brigð­is­þjón­ust­una á Íslandi kemur í ljós að hann er hærri en í öðrum félags­legum heil­brigð­is­kerfum sem við berum okkur saman við, að Finn­landi und­an­skildu. Þá kemur í ljós að almennt hefur kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga lækkað á und­an­förnum árum í félags­legum heil­brigð­is­kerfum. Kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga á Íslandi hefur hins vegar verið breyti­leg frá ára­bili til ára­bils og heldur hækkað þegar til lengri tíma er litið.“

Misjafnt hverjir borga og hvað þeir borga

Líkt og fyrr segir eru heim­sóknir til heim­il­is­lækna ókeypis í Danmörku og í Bret­landi, á meðan kostn­aður sjúk­lingar er lít­ill á Íslandi, í Svíþjóð og víðar í Vestur-Evrópu. Þá er mis­jafnt hvort og þá hvaða hópar sjúk­linga njóta gjald­frelsis í heil­brigð­is­þjón­ustu. Á Íslandi eru heim­sóknir barna á heilsu­gæslu gjald­frjálsar, og það á við víða ann­ars staðar, en sums staðar er líka ókeypis fyrir ung­menni, aldr­aða, fatl­aða og öryrkja að fara til heim­il­is­læknis.

Vís­inda­vef­ur­inn bendir á að í flestum heil­brigð­is­kerfum greiði sjúk­lingar ein­hvern hluta sér­fræði­þjón­ustu sem þeir þiggja utan legu­deilda sjúkra­húsa. „Oft ræðst kostn­aður við sér­fræð­ings­heim­sókn af því hvort um er að ræða til­vísun frá heim­il­is­lækni eða ekki. Með til­vísun frá heim­il­is­lækni er heim­sóknin til sér­fræð­ings­ins þá ýmist ókeypis fyrir sjúk­ling­inn eins og á við í Danmörku og Bret­landi, eða mikið ódýr­ari en ella. Hér­lendis er kostn­aður sjúk­lings vegna komu til sér­fræð­ings sá sami, hvort sem sjúk­ling­ur­inn hefur til­vísun frá heim­il­is­lækni eða ekki.“

Þá taka kerfi víð­ast hvar þátt í því að greiða sál­fræði­þjón­ustu og tann­lækn­ingar, en það hefur ekki verið til­felli hér á landi nema að tann­lækna­þjón­usta barna og aldr­aðra er nið­ur­greidd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár