„Guði sé lof fyrir að enginn bað um vegabréfið“

Flótta­manna­reglur Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) hafa brugð­ist vegna gríð­ar­legs fjölda fólks sem flýr stríðið í Sýrlandi og ófrið í Mið-Aust­ur­löndum og Afríku. Slíkur fjöldi flótta­fólks hefur ekki sést áður í Evrópu en hefur um leið reynt á þol­in­mæði ein­stakra aðild­ar­ríkja ESB gagn­vart reglum um með­höndlun flótta­fólks. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri frétt frá Reuters-frétta­stof­unni um flótta­manna­vanda Evrópu.

Ung­verjar hafa til dæmis brugðið á það ráð að loka landa­mærum sínum og reisa girð­ingu á landa­mærum sínum gagn­vart Serbíu. Innan Schengen svæð­is­ins eiga öll landa­mæri að vera opin en und­an­farna mán­uði hafa ýmis Evr­ópu­lönd hert eft­ir­lit á landa­mærum sínum í takti við aukin fjölda flótta­fólks. Ísland er aðili að Schengen-sam­starf­inu.

Vegna óblíðrar mót­töku í Ung­verja­landi stefndu fjöl­margir flótta­menn þaðan til Þýska­lands og Aust­ur­ríkis með lestum í gær. Þúsundir karla, kvenna og barna fóru skil­ríkja­laus yfir landa­mæri til Þýska­lands, þangað sem fjöl­margir flótta­menn sækja. Þjóð­verjar eru meðal þeirra sem ætla að taka á móti flestum flótta­mönnum.

Á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi í Berlín hvöttu Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, og Mariano Rajoy, for­sæt­is­ráð­herra Spánar, fram­kvæmda­stjórn ESB til að útbúa áætlun svo Evr­ópu­lönd ættu auð­veld­ara með að vinna úr flótta­manna­vand­anum. „Það er tvennt sem við verðum að vera skýr með — fram­kvæmda­stjórn ESB verður að lista upp örugg upp­runa­lönd flótta­fólks. Og við verðum að halda áfram að vinna að sam­stilltum starfs­háttum í fram­tíð­inni,“ sagði Rajoy.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Barn sefur á lest­ar­stöð í Vín eftir ferða­lag frá Búdapest á leið til Þýska­lands. (Mynd: EPA)[/caption]

Tals­maður lög­regl­unnar í Aust­ur­ríki sagði Reuters-frétta­stof­unni að, í sam­ræmi við reglur ESB, væri öllum þeim sem ekki höfðu þegar sótt um hæli í Ung­verja­landi hleypt í gegn — en gríð­ar­legur fjöldi fólks­ins varð til þess að öllum var ein­fald­lega hleypt í gegn.

„Guði sé lof fyrir að eng­inn bað um vega­bréfið… Engin lög­regla, ekk­ert vanda­mál,“ lét hinn 33 ára Khalil hafa eftir sér í Vín. Hann er ensku­kenn­ari frá Kobani í Sýrlandi þar sem Íslamska ríkið hefur komið sér vel fyrir. Eig­in­kona hans hélt á korn­ungri dóttur þeirra sem er veik; hóstaði og grét á lest­ar­stöð í Vín.

Khalil sagð­ist hafa keypt lest­ar­miða fyrir fjöl­skyldu sína í Búdapest alla leið til Ham­borgar þar sem hann trúir því að vel verði tekið á móti þeim eftir erfitt ferða­lag yfir Balkanskaga og í gegnum Ung­verja­land. „Sýr­lend­ingar kalla Merkel „Mamma Merkel“ (þ. Mama Merkel),“ segir hann. Merkel hefur enda verið sá leið­togi Evr­ópu­ríkja sem sýnt hefur flótta­fólk­inu hvað mesta samúð.

Samkvæmt heim­ildum Reuters var lestin frá Vín til Ham­borgar stöðvuð í Passau þar sem lög­reglu­þjónar í skot­heldum vestum bað flótta­fólkið um að fylgja sér á lög­reglu­stöð þar sem það yrði skráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár