Oxford-bóluefnið þykir líklegast til árangurs

Ef til­raunir með bólu­efni sem nú er í þróun við Oxford-háskóla skila jákvæðum nið­ur­stöðum á næstu vikum verður hugs­an­lega hægt að byrja að nota það í haust.

Tilraunir með Oxford-bóluefnið í mönnum eru hafnar í þremur löndum, m.a. Suður-Afríku.
Til­raunir með Oxford-bólu­efnið í mönnum eru hafnar í þremur löndum, m.a. Suður-Afríku. Mynd: EPA

Um 180 bólu­efni gegn COVID-19 eru í þróun í heim­inum í dag. Rúmlega tutt­ugu eru nú prófuð á fólki. Yfir­leitt tekur mörg ár að þróa bólu­efni áður en það kemur á markað en vís­inda­menn kepp­ast nú við að flýta því ferli og von­ast til að á næsta ári verði öruggt og áhrifa­ríkt bólu­efni gegn þessum nýja sjúk­dómi til­búið.

Það bólu­efni sem þykir lík­leg­ast til að verða hið fyrsta til að gagn­ast í bar­átt­unni á heims­vísu er í þróun í Oxford-háskóla. Þó að mörg önnur þró­un­ar­verk­efni lofi góðu, m.a. nokkur í Banda­ríkj­unum, hafa sér­fræð­ingar Alþjóða heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar (WHO) sagt að Oxford-teym­inu virð­ist ganga best. Bólu­efnið er nú komið á síð­ari stig þró­unar og þar með lengra en nokk­urt annað bólu­efni.

Í frétt Economist um málið segir að stjórn­völd ríkja víða um heim hafi sett pen­inga til þró­unar Oxford-bólu­efn­is­ins, eins og það er kallað. Verk­efnið nýtur því gríð­ar­legs fjár­hags­legs stuðn­ings, ólíkt t.d. því bólu­efni sem lengst er komið í þróun í Kína.

Þá er bresk-sænska lyfja­fyr­ir­tækið AstraZeneca, sem stendur að þró­un­inni ásamt vís­inda­mönnum háskól­ans, að útfæra skipu­lag á því hvernig koma megi bólu­efn­inu til sem flestra í heim­inum „hratt og örugg­lega“.

Og það stytt­ist í að í ljós komi hvort Oxford-bólu­efnið sé jafn áhrifa­ríkt og von­ast er til. Talað er um ágúst­lok í því sam­bandi. Ef sú prófun á efn­inu sem nú stendur yfir heppn­ast vel þá geta þar til bær yfir­völd, að því er fram kemur í grein Economist, sam­þykkt bólu­efnið til notk­unar í neyð og í kjöl­farið meðal fólks í sér­stökum áhættu­hópum. Ef allt gengur að óskum, sem enn er óvíst, gæti sá hópur fengið bólu­efnið þegar í októ­ber. Og AstraZeneca telur að fullt sam­þykki fyrir notkun bólu­efn­is­ins gæti feng­ist snemma á næsta ári.

Snemma í jan­úar, aðeins nokkrum dögum eftir að ný veira upp­götv­að­ist í Kína, var haf­ist handa við að afhjúpa erfða­mengi hennar. Í mars hófust fyrstu til­raunir með bólu­efni á fólki. Tugir teyma vís­inda­manna hafa lagt nótt við dag við að rann­saka veiruna og freista þess að finna upp bólu­efni gegn henni. Í miklu kapp­hlaupi við tím­ann. Margar til­raunir munu mis­takast. Margar til­raunir munu ekki skila þeim árangri sem von­ast var eftir. En vonin er sú að ein­hverjar þeirri eigi eftir að skila þeim árangri að hægt verði að bólu­setja fólk gegn SARS CoV-2 svo koma megi böndum á far­ald­ur­inn skæða sem enn virð­ist ekki hafa náð hámarki á heims­vísu.

Talsmenn AstraZeneca hafa sagt að hver skammtur af Oxford-bólu­efn­inu ætti ekki að þurfa að kosta mikið meira en kaffi­bolli. Þegar hafa verið lagðar inn pant­anir á tveimur millj­örðum skammta.

En stóru spurn­ing­arnar eru: Mun bólu­efnið virka? Og er það öruggt?

Það er ekki að ástæðu­lausu að bólu­efni hafa hingað til verið mjög lengi í þróun. Í mörg ár og jafn­vel ára­tugi. Að búa til öruggt bólu­efni, sem veldur ekki meiri skaða en veiran sjálf myndi valda, hefur hingað til verið lang­hlaup – ekki sprett­hlaup.

Til­raunir á Oxford-bólu­efn­inu standa yfir í Bret­landi, Suður-Afríku og Brasilíu. Í Bret­landi er verið að prófa efnið á um 7.000 manns. Eitt af því sem rann­sakað er hjá þeim sem taka þátt í til­raun­inni eru við­brögð við efn­inu og hversu stóran skammt þarf að gefa svo að nægt mótefni mynd­ist.

New York Times fylgist stöðugt með stöð­unni á þróun bólu­efna. Þá sam­an­tekt má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár