Hæstiréttur staðfesti dóm í flugvallarmáli – Neyðarbrautinni skal lokað

Styr hefur staðið um staðsetningu flugvallarins í Vatnsmýri um nokkra hríð.
Styr hefur staðið um stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri um nokkra hríð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ríkið þarf að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­ur­borg um að loka norð­austur/suð­vestur-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­ar­brautin, á Reykj­ar­vík­ur­flug­velli. Hæsti­réttur stað­festi í dag dóm hér­aðs­dóms Reykja­víkur síðan 22. mars síð­ast­lið­inn þess efnis, sem Kjarninn fjall­aði um.

Í mál­inu krafð­ist Reykja­vík­ur­borg þess að Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra, fyrir hönd íslenska rík­is­ins, yrði gert að loka NA/SV-flug­braut (flug­braut 06/24), sem oft er kölluð neyð­ar­braut­in, á Reykja­vík­ur­flug­velli og end­ur­skoða skipu­lags­reglur fyrir völl­inn. Meg­in­á­grein­ingur aðila laut að túlkun og þýð­ingu skjals sem þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, og borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, Jón Gnarr, und­ir­rit­uðu 25. októ­ber 2013. Reykja­vík­ur­borg taldi að skjalið hafi falið í sér bind­andi lof­orð af hálfu stefnda um að loka umræddri flug­braut Reykja­vík­ur­flug­vallar. Af hálfu rík­is­ins var því hins vegar hafnað af ýmsum ástæðum að skjalið hafi falið í sér lof­orð af hans hálfu eða skuld­bind­andi samn­ing.

Hér­aðs­dómur dæmdi í mál­inu í mars og komst að þeirri nið­ur­stöðu að loka eigi braut­inni. Í dóms­orði sagði að inn­an­rík­is­ráð­herra eigi að end­ur­skoða skipu­lags­reglur til sam­ræmis við þá lokun.

[adspot]

Lokun hefur lengi staðið til

Lokun braut­ar­innar hefur staðið árum sam­an. Árið 2005 und­ir­rit­uðu þá­ver­andi borg­ar­stjóri Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dóttir og þáver­andi sam­göngu­ráð­herra Sturla Böðv­ars­son sam­komu­lag um sam­göngu­mið­stöð sem rísa skyldi í Vatns­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þáver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­göngu­mið­stöð við enda brautar 06/24.

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­aði Hanna Birna, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­þykkt um að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl. Þegar því yrði lokið átti að til­kynna um lokun braut­ar­inn­ar. Í des­em­ber 2013 óskaði inn­an­rík­is­ráðu­neytið eftir því að und­ir­bún­ingur yrði hafin að lokun flug­braut­ar­inn­ar, með þeim fyr­ir­vara að ekk­ert yrði gert fyrr en að Rögnu­nefndin svo­kall­aða myndi skila nið­ur­stöðum sín­um. Skýrslu henn­ar var skilað í fyrra og nið­ur­staða nefnd­ar­innar leysti ekki deilur um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­lagna hennar liggur enn ekki fyr­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár