Hertar takmarkanir á samkomum en þær miðast nú við 20 manns

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að tak­marka sam­komur enn frekar en áður vegna hrað­ari útbreiðslu Covid-19 í sam­fé­lag­inu.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið, í sam­ræmi við til­lögu sótt­varna­læknis, að tak­marka sam­komur enn frekar en áður vegna hrað­ari útbreiðslu Covid-19 í sam­fé­lag­inu. Við­burðir þar sem fólk kemur saman verða tak­mark­aðir við 20 manns í stað 100 áður. Við öll manna­mót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Ákvörð­unin tekur gildi á mið­nætti annað kvöld. Tak­mörkun á skóla­haldi verður óbreytt.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hefur sótt­varna­læknir haft þessar aðgerðir til skoð­unar síð­ustu daga, með hlið­sjón af þróun mála hér á landi, til­mælum Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar og í ljósi aðgerða ann­arra ríkja. Ákvörðun heil­brigð­is­ráð­herra um frek­ari tak­mark­anir eins og sótt­varna­læknir leggur til á sér stoð í 12 gr. sótt­varna­laga, segir enn fremur í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Helstu áhrif frekari takmörkunar:

  • Allar fjölda­sam­komur þar sem fleiri en 20 manns koma saman eru óheim­ilar meðan tak­mörk­unin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opin­berum rýmum eða einka­rýmum.
  • Hvar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga.
  • Á öllum vinnu­stöðum eða þar sem önnur starf­semi fer fram skal vera tryggt að ekki séu fleiri en 20 ein­stak­lingar í sama rými. Þessar tak­mark­anir eiga einnig við um almenn­ings­sam­komur og aðra sam­bæri­lega starf­semi.
  • Sér­stakar reglur gilda um mat­vöru­versl­anir og lyfja­búðir. Þar verður heim­ilt að hafa allt að 100 manns inni í einu, að því gefnu að hægt sé að halda a.m.k. 2 metra fjar­lægð milli ein­stak­linga. Ef mat­vöru­versl­anir eru yfir 1.000 m2 er heim­ilt að hleypa til við­bótar einum ein­stak­lingi fyrir hverja 10 m2 þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 við­skipta­vinum.

Lokun samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu

  • Sund­laugum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­sölum, spila­kössum og söfnum skal lokað meðan á þessum tak­mörk­unum stendur.
  • Starf­semi og þjón­usta sem krefst mik­illar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mik­illi nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþrótta­starf og einnig allar hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur, nudd­stofur og önnur sam­bæri­leg starf­semi. Þetta á einnig við um íþrótta­starf þar sem notkun á sam­eig­in­legum bún­aði getur haft smit­hættu í för með sér, s.s. skíða­lyftur.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma

  • Í öllum versl­unum, opin­berum bygg­ingum og á öðrum stöðum inn­an­dyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrifið eins oft og unnt er, sér­stak­lega algenga snertifleti.
  • Við alla inn­ganga skal tryggja aðgang að sótt­hreins­andi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, s.s. við afgreiðslu­kassa í versl­unum.

Undanskilið ákvörðun um hertar takmarkanir

  • Sérstök aug­lýs­ing sem áður hefur verið birt gildir um tak­mörkun skóla­starfs. Þó skal fylgja fjar­lægð­ar­mörkum um tveggja metra fjar­lægð milli ein­stak­linga eftir því sem það á við og mögu­legt er, einkum gagn­vart eldri börnum.
  • Tak­mörk­unin gildir ekki um nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu sem ekki getur beðið.
  • Tak­mörk­unin tekur hvorki til alþjóða­flug­valla og -hafna, né til loft­fara og skipa.

Undanþágur

  • Heil­brigð­is­ráð­herra getur veitt und­an­þágu frá tak­mörkun á sam­komum í þágu alls­herj­ar­reglu eða öryggis rík­is­ins eða til verndar lífs eða heilsu manna eða dýra.
  • Sótt­varna­læknir getur veitt und­an­þágu frá sótt­kví vegna sam­fé­lags­legra ómissandi inn­viða sem mega ekki stöðvast vegna lífs­bjarg­andi starf­semi, s.s. raf­orku, fjar­skipta, sam­gangna, heil­brigð­is­starf­semi, lög­gæslu, sjúkra­flutn­inga og slökkvi­liða.
  • Allar und­an­þágur sem veittar hafa verið vegna sótt­kvíar falla úr gildi og þurfa þeir sem slíkt hafa fengið að sækja um að nýju sé þörf á því.

Heil­brigð­is­ráð­herra mun birta í Stjórn­ar­tíð­indum nýja aug­lýs­ingu um tak­mörkun á sam­komum í stað þeirrar eldri sem fellur þar með úr gildi. Gild­is­tími verður óbreyttur, það er til 12. apríl næst­kom­andi. Tak­mörk­unin tekur til lands­ins alls. Stjórn­völd end­ur­meta tak­mörk­un­ina eftir því sem efni standa til, hvort heldur til að aflétta henni fyrr, eða fram­lengja gild­is­tím­ann, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár