Þrjú mál er varða kynferðislega áreitni komið á borð Icelandair

Tæplega sex hund­ruð konur í flugi skrif­uðu undir áskorun þar sem þær höfn­uðu kyn­ferð­is­legri áreitni og mis­munun í fyrstu bylgju metoo í des­em­ber 2017. Þrjú mál hafa verið til­kynnt til mannauðs­sviðs Icelandair á síð­ustu fjórum árum.

Þrjú mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni hafa verið til­kynnt til mannauðs­sviðs Icelandair á síð­ustu fjórum árum og við úrlausn þeirra var unnið eftir því verk­lagi sem nú er í gildi.

Þetta kemur fram í svari Icelandair við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Icelandair leggur ríka áherslu á vellíðan starfs­fólks og að byggja upp menn­ingu sem ein­kenn­ist af jafn­rétti og virð­ingu. Hvers kyns ofbeldi, áreitni eða ein­elti er aldrei liðið. Komi upp slík mál eru þau tekin fyrir mið­lægt hjá mannauðs­sviði félags­ins. Mannauðs­svið vinnur eftir vel skil­greindu verk­lagi og getur auk þess kallað til utan­að­kom­andi sér­fræð­inga til ráð­gjafar og úrlausnar ef um flókin og/eða alvar­lega atvik er að ræða,“ segir í svar­inu.

„Verðskuldum að okkur sé trúað og sýndur stuðningur.“

Tæplega sex hund­ruð konur í flugi skrif­uðu undir áskorun þar sem þær höfn­uðu kyn­ferð­is­legri áreitni og mis­munun í fyrstu bylgju metoo í des­em­ber 2017. Í henni sögðu þær að kyn­ferð­is­of­beldi, áreitni og kyn­bundin mis­munun ætti sér stað í flug­stétt­inni, rétt eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Þó margir jafn­rétt­is­sigrar hefðu unn­ist með mik­illi þraut­seigju og vinnu starfs­systra þeirra væru miklar leyfar af kynja­mis­rétti, stétta­skipt­ingu og hlut­gerv­ingu flug­freyja enn til staðar sem óprút­tnir aðilar not­færðu sér til að lít­il­lækka, mis­nota og áreita konur innan stétt­ar­inn­ar.

„Óþarfi er að taka fram að allir karlar ger­ast ekki sekir um áreitni eða mis­munun – en hins vegar verða nær allar konur fyrir því á starfs­ferli sínum og það er alger­lega óásætt­an­legt. Við krefj­umst þess að karl­kyns sam­verka­menn okkar taki ábyrgð; að fyr­ir­tækin og stétt­ar­fé­lagið taki af festu á mál­inu og komi sér upp eða skerpi á verk­ferlum og við­bragðs­á­ætl­un. Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur né leiða ástandið hjá okk­ur. Við verð­skuldum að okkur sé trúað og sýndur stuðn­ing­ur.

Fyrst og fremst á mis­rétt­inu að linna. Við krefj­umst þess að fá að vinna vinn­una okkar án áreitni, ofbeldis eða mis­mun­un­ar. Við stöndum saman og höfum hátt,“ sagði í áskor­un­inni.

Þær sendu einnig frá sér 28 nafn­lausar sögur þar sem þær lýstu reynslu sinni í starfi. Frá­sagn­irnar sýndu þann raun­veru­leika sem flug­freyjur þurfa að búa við í störfum sínu.

Starfsmönnum sem verða vitni að slíku athæfi ber skylda til að tilkynna það

Í verk­lagi Icelandair til að takast á við til­kynnt ein­elti, áreitni og ofbeldi kemur fram að mik­il­vægt sé að starfs­maður sem telur sig hafa orðið fyrir ein­elti, áreitni eða ofbeldi á vinnu­staðnum til­kynni málið eins fljótt og auðið er. Starfs­mönnum sem verða vitni að slíku athæfi beri einnig skylda til að til­kynna það.

Allar kvart­anir um ein­elti og áreitni skulu kann­aðar, sam­kvæmt verk­lag­inu. „Brugðist verður hratt við og af aðgætni og þag­mælsku þar sem slík mál eru við­kvæm. Rætt er við aðila sem eiga hlut að máli og aðra sem kunna að hafa vit­neskju um málið.“

Eftir að kvörtun hefur verið borin fram er ásök­unum rann­sökuð. Þegar nið­ur­staða liggur fyrir er hún kynnt öllum hlut­að­eig­endum. Komi í ljós að til­kynn­ing eigi við rök að styðj­ast skuli mannauðs­svið tryggja að gripið verði til aðgerða til að stöðva hegðun, tryggja að aðstæður á vinnu­stað verði bættar og veita þol­anda við­eig­andi aðstoð.

Aðgerðir geta meðal ann­ars falist í sátta­miðlun, áminn­ingu, leið­sögn, fræðslu eða til­færslu í starfi. Þegar um alvar­leg atvik er að ræða leiða þau til upp­sagnar ger­anda, að því er fram kemur í verk­lagi Icelandair. Síðasta skrefið er eft­ir­fylgni en sam­kvæmt flug­fé­lag­inu er nauð­syn­legt að fylgja mál­inu eftir með því að „fylgj­ast með líðan og félags­legri stöðu ger­anda og þol­anda á vinnu­stað, veita ger­anda og/eða þol­anda við­eig­andi stuðn­ing og hjálp og meta og end­ur­skoða árangur inn­grips“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár