Heilbrigð börn ættu að halda áfram að sækja skóla

Land­læknir og sótt­varna­læknir telja að heil­brigð börn ættu að halda áfram að sækja sinn skóla. Námið sé þeim mik­il­vægt, sem og sú virkni og aðhald sem því fylgir.

Alma Möller land­læknir og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sendu í gær bréf til skóla­stjórn­enda, kenn­ara og for­eldra þar sem þau árétt­uðu mik­il­vægi þess að nem­endur í leik- og grunn­skólum héldu áfram að sækja skóla þrátt fyrir tak­mark­anir á skóla­starfi.

„Nauðsyn þess að hefta útbreiðslu COVID-19 far­ald­urs­ins er öllum ljós. Markmið aðgerða er að auka líkur á því að heil­brigð­is­kerfið geti sinnt þeim sem veikj­ast af COVID-19 hér á landi ásamt því að geta sinnt annarri bráða­þjón­ustu,“ segir í bréf­inu.

Að mati sótt­varna­læknis eru líkur á smiti frá ungum börnum tölu­vert ólík­legra en frá full­orðnum „enda sýna rann­sóknir hér á landi og á hinum Norð­ur­lönd­unum að smit hjá börnum er fátítt.“ Því megi leiða líkum að því að ekki sé til­efni til þess að tak­marka skóla­starf frekar í sótt­varn­ar­skyni.

Náið sé fylgst með stöð­unni og vilja land­læknir og sótt­varna­læknir koma eft­ir­far­andi skila­boðum á fram­færi við skóla­stjórn­endur, kenn­ara og starfs­fólk skóla og for­eldra nem­enda í leik- og grunn­skólum:

  • Heil­brigð börn ættu að halda áfram að sækja sinn skóla. Námið er þeim mik­il­vægt, sem og sú virkni og aðhald sem því fylgir.
  • Kennarar og starfs­fólk skóla er fram­línu­fólk í núver­andi aðstæðum. Skól­arnir eru mik­il­vægur hlekkur í okkar sam­fé­lagi og fram­lag skóla­sam­fé­lags­ins afar dýr­mætt í því sam­hengi. Staðan er flókin og kallar á fjöl­breyttar leiðir, úthald og sveigj­an­leika af hálfu allra.
  • Kennarar og starfs­fólk í áhættu­hópum ættu að gæta fyllstu var­úðar og skólar fara eftir sínum við­bragðs­á­ætl­unum ef upp kemur grunur um smit.

Undir bréfið skrifa Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár