Húsnæði Sósíalistaflokks grýtt og Gunnari Smára hótað – „Ég vill ekki beita vopnum en þið gefið mér ekki færi á öðru“

Formanni fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands var sagt að hugsa um fjöl­skyldu sína áður en hann héldi áfram starfi sínu í stjórn­málum. Hann hefur til­kynnt hót­an­irnar til lög­reglu.

Húsnæði þar sem Sós­í­alista­flokkur Íslands leigir aðstöðu ásamt öðrum sam­tökum var grýtt í gær, með þeim afleið­ingum að tveir gluggar þar sem merki flokks­ins og Sam­stöðv­ar­innar var, brotn­uðu. Frá þessu greinir Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, á Facebook-síðu flokks­ins í gær­kvöldi.

Þar segir hann enn fremur frá því að maður hefði sent á hann skila­boð fyrir tveimur dögum með óhróðri. Skila­boðin voru eft­ir­far­andi: „Þið eruð sið­blind hel­víti og farið beint þangað. Ég mun finna á end­anum hvar þið eigið heima. Hugsaðu um fjöl­skyld­una þína áður en þið haldið áfram. Ég vill ekki beita vopnum en þið gefið mér ekki færi á öðru.“

Gunnar Smári segir að hann hafi greint mann­inum frá því að hann myndi senda skila­boðin til lög­reglu og gerði það í kjöl­farið. „Lög­reglu­maður hringdi í mig dag­inn eftir og ég nefndi við hann að annar maður hefur haft í hót­unum við mig, veist að mér úti á götu og fjöl­skyldu minni. Ég sá hann síð­ast fyrir utan heim­ili mitt þar sem hélt hót­unum sínum áfram, hróp­aði alls kyns ókvæð­is­orð um meinta glæpi sós­í­al­ism­ans, sagði mér að láta Bjarna Bene­dikts­son í friði og hróp­aði að lokum: Viva Bjarni Ben!“

Benti lögreglu á skoða orðfæri áhrifafólks

Hann seg­ist hafa bent lög­reglu­mann­inum á að þeir sem rann­saki hat­urs­orð­ræðu innan lög­regl­unnar ættu skoða orð­færi áhrifa­fólks í sam­fé­lags­um­ræð­unni, sem tal­aði um sós­í­al­isma þannig að fólk sem væri að berj­ast fyrir hags­munum verka­lýðs og fátæks fólks innan Sós­í­alista­flokks­ins bæri á ein­hvern hátt ábyrgð á morðum og ofbeld­is­verkum alræð­is­stjórna á síð­ustu öld. „Að þau sem vildu há rót­tæka verka­lýðs­bar­áttu á Íslandi í dag væru í raun að leggja af stað í leið­angur sem hlyti að enda í afnámi lýð­rétt­inda, morðum á póli­tískum and­stæð­ingum, jafn­vel hung­ursneyðum sem myndu fella tugi millj­óna manna. Undir slíkum hat­urs­ræðum gegn frels­is­bar­áttu hinna fátæku og valda­lausu fengju van­stilltir menn þær grillur í haus­inn að sjálf­sagt væri að hóta og jafn­vel meiða for­ystu­fólk í Sós­í­alista­flokknum og í verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

[adspot]Ég stakk upp á að lög­reglan gæti t.d. haldið erindi í stjórn­mála­skóla Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem það hefur verið kennt lengi að sá sem aðhyllist hug­sjónir sós­í­al­ism­ans myndi á end­anum leið­ast út í sams­konar alræði og ein­ræð­is­herrar sov­éska og kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins.“

Óttast að hótanir séu nú meira en belgingur

Gunnar Smári segir ekki geta vitað hvort annar þeirra manna sem hann benti lög­reglu á hafi verið að verki þegar skemmd­ar­verk voru unnin á hús­næði Sós­í­alista­flokks Íslands í gær.

Hann gruni þó að svo sé. „Ég hef verið blaða­maður frá því fyrir næstum fjöru­tíu árum og oft verið hótað. Menn hafa ruðst inn á rit­stjórnir blaða sem ég hef unnið á og gert sig breiða, ætt inn á skrif­stofu mína, lokað á eftir sér og hótað lík­ams­meið­ingum. Ég hef fengið hót­anir í pósti, sím­tölum, tölvu­pósti og sms. Mér datt aldrei í hug að til­kynna þessar hót­anir og hef aldrei sagt frá þeim opin­ber­lega.

Ekki fyrr en núna í vik­unni. Heiftin í þessum mönnum og talsmáti, og full­vissa þeirra um að sós­í­alistar sé skepnur og sví­virð­ingar, veldur því að ég ótt­ast að þetta sé ekki bara belg­ingur, eins og hót­anir eru oft­ast.“

Gunnar Smári segir að sama orð­ræða hafi verið við­höfð í átök­unum í kringum Eflingu sem staðið hafa und­an­farin ár. Þar hafi Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður félags­ins, verið sögð Stalínisti, halda dauða­lista yfir fólk, þola enga gagn­rýni og annað sem átt hafi að skapa hug­renn­inga­tengsl við glæpa alræð­is­stjórna Sov­ét­ríkj­anna. „Og þegar Pútín sendi rúss­neska her­inn inn í Úkraínu stigu menn á stökk, sem af ein­hverjum óskilj­an­legum ástæðum eru taldir máls­met­andi, til að lýsa yfir ábyrgð íslenskra sós­í­alista á þess­ari inn­rás. Jafnvel þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið í póli­tísku sam­starfi við Sameinað Rússland fram að inn­rásinni á Krím og Pútín er álíka langt frá því að vera Sós­í­alisti og Bol­son­aro, Trump eða Erdogan, svo ein­hverjir af öðrum póli­tískum sam­herjum Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu nefndir.“

Í færsl­unni segir Gunnar Smári að hann telji að sós­í­alistar þurfi að taka alvar­lega þá orð­ræðu sem sé við­höfð á Íslandi. „Það eru aug­ljós merki um vax­andi McCarthyisma, þar sem reynt er eins og á síð­ustu öld að tengja heið­ar­legan sós­í­al­isma, verka­lýðs­bar­áttu og rétt­læt­is­bar­áttu hinna valda­lausu við und­ir­róður, ann­ar­leg og leynd mark­mið, nið­ur­brot lýð­rétt­inda eða fyrir að vera hand­bendi erlendra alræð­is­ríkja. Þetta er sú aðferð sem and­stæð­ingar sós­í­al­ism­ans þekkja og grípa fljótt til þegar sós­íal­ískur mál­flutn­ingur heyr­ist. Því er haldið að fólki að sá sem hneig­ist til sós­í­al­isma muni fljótt verða alræð­is­sinni. Svona svipað og þegar Nancy Reagan hélt því fram að sá sem reykti hass mundi óhjá­kvæmi­lega reykja krakk stuttu síðar. Þótt þetta sé banal orð­ræða þá virkar hún á fólk sem er einmitt banalt fyrir og það sér sós­í­alista sem stór­hættu­legt fólk sem verður að stoppa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár