Samkomubann framlengt til 4. maí

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að fram­lengja sam­komu­bann til 4. maí að til­lögu sótt­varna­læknis. Það veldur áhyggjum hversu margir hafa veikst alvar­lega af COVID-19 hér á landi.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að fram­lengja til 4. maí þær tak­mark­anir á sam­komum og skóla­haldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl. Ákvörð­unin er í sam­ræmi við til­lögu sótt­varna­læknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvar­lega veikum ein­stak­lingum sem þurfa á gjör­gæslu að halda hefur fjölgað hratt, segir í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins.

„Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyr­ir­mælum okkar besta fag­fólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heil­brigð­is­kerfið fari yfir þol­mörkin“ er haft eftir heil­brigð­is­ráð­herra í til­kynn­ing­unni.

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra kom fram að marg­vís­legar aðgerðir, m.a. fram­an­greindar tak­mark­anir, hafa skilað því að tek­ist hefur að hefta útbreiðslu COVID-19 í sam­fé­lag­inu. Til þessa hefur fjölgun smita ekki verið meiri en svo að hún helst í hendur við bjart­sýn­ustu spár hvað það varðar sam­kvæmt spálík­ani sér­fræð­inga þar að lút­andi sem sjá má á vefnum Covid.hi.is.

Aftur á móti hefur alvar­lega veikum ein­stak­lingum fjölgað jafnt og þétt, sem lýsir sér m.a. með miklu álagi á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. Ljóst er að frek­ari aukn­ing á smiti í sam­fé­lag­inu með fjölgun alvar­lega veikra, getur skapað mik­inn vanda innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og tor­veldað því að gegna hlut­verki sínu eins og þörf krefur.

[links]Takmörkunum verði aflétt í áföngum

Engar breyt­ingar verða á gild­andi tak­mörk­unum á sam­komum og skóla­haldi aðrar en fram­lengdur gild­is­tími til 4. maí. Á tíma­bil­inu verður und­ir­búin áætlun um hvernig best megi standa að því að aflétta gild­andi tak­mörk­unum í áföngum. Stefnt er að því að kynna þau áform fyrir lok þessa mán­aðar.

Veittar undanþágur halda gildi

Und­an­þágur sem veittar hafa verið frá tak­mörk­unum á sam­komum og skóla­haldi munu halda gildi sínu sem nemur fram­leng­ingu aðgerða, þ.e. til 4. maí. Áréttað er að und­an­þágur eru því aðeins veittar að mikið sé í húfi, þ.e. í þágu alls­herj­ar­reglu, öryggis rík­is­ins eða til verndar lífi eða heilsu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár