Vilja leggja fram verðtryggingarfrumvarp framhjá Sjálfstæðisflokknum

Til greina kemur hjá Framsókn að leggja fram frum­varp um afnám verð­trygg­ingar sem þing­manna­frum­varp. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur stöðvað málið en það á stuðn­ing í öðrum flokkum, segir þing­maður.

Rætt hefur verið um það í þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins að leggja fram frum­varp um verð­trygg­ing­una þegar þing kemur saman og „leyfa þing­inu að ræða það“. Þetta segir Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Silja Dögg var gestur í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun þar sem þetta kom fram. Hún sagði að hún væri þeirrar skoð­unar að það ætti að leyfa þing­inu að ræða um afnám verð­trygg­ingar og að hún teldi að það væri stuðn­ingur við slíkt frum­varp í stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum. Þetta hefði verið rætt í þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins og „það eru fleiri en ég sem eru á þess­ari skoðun,“ sagði hún. Þegar hún var spurð að því hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði stoppað málið á þessu kjör­tíma­bili sagði hún: „Já, aug­ljós­lega. Það vita það allir.“

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður VG, var einnig gestur þátt­ar­ins og benti á að ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi leggja slíkt frum­varp fram án atbeina Sjálf­stæð­is­flokks­ins yrði slíkt frum­varp ekki lagt fram sem stjórn­ar­frum­varp. Það yrði þing­manna­frum­varp og „þá væri það alveg nýtt lands­lag“ í íslenskum stjórn­málum, að flokkur í rík­is­stjórn gerði slíkt. „Þá myndu nú ein­hverjir segja að þetta sé þá búið,“ sagði Svandís og átti við rík­is­stjórn­ar­sam­starfið milli Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Silja Dögg sagði að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri til­bú­inn í kosn­ingar rétt eins og aðrir flokkar. Hún sagði engu að síður að það væri hennar mat að það yrði að halda flokks­þing þar sem for­manns­kjör fari fram, fyrir kosn­ingar. Panama­skjölin hefðu skaðað Sigmund Davíð og verið „mjög erfitt mál“.

Þegar hún var spurð að því hvort hún myndi styðja Sigmund Davíð til áfram­hald­andi for­mennsku í flokknum svar­aði hún: „Ég hef ekki gert það upp við mig.“ Hún sagði að henni þætti Sigurður Ingi Jóhanns­son hafa staðið sig vel sem for­sæt­is­ráð­herra, en einnig að horfa þyrfti til for­ystu Sig­mundar Davíðs heilt yfir. „Það eru mjög margir fram­sókn­ar­menn sem eru hrifnir af Sigmundi DAvíð og því sem hann hefur gert,“ sagði hún og nefndi meðal ann­ars leið­rétt­ing­ar­mál og hafta­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár