Bólusettir þurfa að skila inn COVID-prófi áður en þeir leggja af stað til Íslands

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að frá og með 27. júlí þurfi bólu­settir ein­stak­lingar sem ferð­ast til Íslands að skila inn nei­kvæðu COVID-prófi, ýmist PCR-prófi eða hrað­prófi, áður en haldið er af stað.

Bólusettir komufarþegar verða krafðir um niðurstöðu COVID-prófs áður en þeir halda af stað til Íslands frá og með næsta mánudegi.
Bólu­settir komu­far­þegar verða krafðir um nið­ur­stöðu COVID-prófs áður en þeir halda af stað til Íslands frá og með næsta mánu­degi. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að frá og með næsta þriðju­degi þurfi allir sem til lands­ins koma, bólu­settir jafnt sem óbólu­settir, að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi sem má að hámarki vera 72 klukku­stunda gam­alt er þeir halda af stað til Íslands.

Einnig verður nú mælst til þess að þeir sem eru búsettir á Íslandi eða hafa tengsla­net hér á landi fari í skimun við kom­una til lands­ins, en það verður ekki skylda.

Þetta kynnti rík­is­stjórnin eftir fund sinn sem fram fór í hádeg­inu í dag, en stjórnin kom saman til þess að ræða til­lögur sótt­varna­læknis um hertar aðgerðir á landa­mærum til þess að stemma stigu við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að bólu­settir ein­stak­lingar megi fram­vísa bæði nið­ur­stöðum úr PCR-prófi eða svoköll­uðum antigen-hrað­prófum áður en haldið er af stað til Íslands.

Áfram verður gerð krafa um að óbólu­settir fram­vísi nið­ur­stöðu úr PCR-prófi áður en þeir halda til Íslands og áfram verður gerð krafa um að þeir und­ir­gang­ist tvær skimanir með fimm daga sótt­kví á milli skim­ana eftir kom­una til lands­ins. Börn fædd árið 2005 og síðar verða áfram und­an­þegin öllum tak­mörk­unum á landa­mærum.

Ekki mögulegt að skylda alla með íslenska kennitölu í skimun

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir lagði það til við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að ráð­ist yrði í skimun allra þeirra sem til lands­ins koma og eru með íslenska kenni­tölu, óháð því hvort þeir væru bólu­settir eður ei. Þetta lagði hann til þar sem reynslan sýnir að þeir sem eru búsettir hér­lendis eða með tengsla­net hér á landi eru lík­legri til að smita út frá sér en ferða­menn.

[adspot]

Á þetta var ekki fall­ist, en sam­kvæmt frétt mbl.is var það sökum þess að rík­is­stjórnin taldi það stang­ast á við jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar að beita þá sem eru með íslenska kenni­tölu strang­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum en aðra sem til lands­ins koma.

Þetta virð­ist hafa verið við­búin nið­ur­staða, en í minn­is­blaði Þórólfs segir að ef það reyn­ist „ekki fram­kvæm­an­legt“ að taka sýni á landa­mærum frá þessum hópi þá verði þessir ein­stak­lingar hvattir til að fara í sýna­töku inn­an­lands eins fljótt og auðið er eftir heim­kom­una.

Stjórnvöld þurfi að vera „tilbúin til að grípa til ráðstafana“

Af minn­is­blaði Þórólfs má lesa að hann hefur nokkrar áhyggjur af stöðu mála með til­liti til útbreiðslu COVID-19 hér inn­an­lands, jafn­vel þótt bólu­setn­ingar séu hér útbreidd­ari en nær alstaðar.

Hann segir að stjórn­völd þurfi „að vera til­búin til að grípa til ráð­staf­ana ef útbreiðsla far­ald­urs­ins eykst til muna eða ef ein­stak­lingar fara að veikj­ast alvar­lega“ og að mik­il­vægt sé að styðj­ast við reynslu af fyrri aðgerðum ef til þess kemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár