Vinstri græn langstærst með 28 prósent fylgi

Fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn minnkar mikið, niður í 21 pró­sent.

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn tap­ar þriðj­ungi þing­manna sinna sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könn­un Fé­lags­vís­inda­stofn­un­ar fyr­ir Morg­un­blaðið dag­ana 2. til 4. októ­ber. Flokk­ur­inn fengi tæp­lega 21 pró­sent stuðn­ing og myndi missa sjö þing­menn miðað við stöðu mála nú, en flokk­ur­inn hefur 21 þing­mann.

Flokk­ur­inn nýt­ur nú stuðn­ings tæp­lega 21% kjós­enda og fengi 14 þing­menn kjörna í stað 21.

Vinstri­hreyf­ing­in – grænt fram­boð, sem þessi dag­ana heldur lands­fund sinn, er lang­stærsti flokk­ur­inn, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Flokk­ur­inn mælis með 28,2% fylgi, sem gef­ur 20 þing­menn.

Þetta er veru­leg fylg­is­aukn­ing frá kosn­ing­un­um 2016 þegar flokk­ur­inn fékk tæp 16% at­kvæða og 10 þing­menn.

Sam­fylk­ingin mælist með 10,8 pró­sent fylgi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 5,5, pró­sent, Píratar 9,1 pró­sent, Flokkur fólks­ins 9 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn 9,5 pró­sent og aðrir flokkar minna. Hvorki Viðreisn né Björt fram­tíð nær yfir 5 pró­sent sam þarf til að ná inn manni.

Sé mið tekið af síð­ustu upp­færslu á kosn­inga­spá.is, sem unnin er í sam­vinnu við Kjarnann, þá er VG með 26,9 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 23,2 pró­sent. Ítar­legar upp­lýs­ingar um kosn­inga­bar­átt­una má finna á kosn­inga­vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár