Bjarni: Virðing þingsins í spíral niður á við og ekki hægt að segja að botni sé náð

„Það sem er að ger­ast er það að menn eru í spíral niður á við, niður á við með þingið í virð­ingu gagn­vart þjóð­inni. Sjálfs­virð­ing þings­ins er í fallandi spíral niður á við,“ segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um stöð­una í þing­inu. Bjarni sagði þetta á Alþingi í morgun, þegar rætt var um áfram­hald­andi umræðu um fjár­laga­frum­varpið. Samþykkt var að halda næt­ur­fund í dag, en önnur umræða um fjár­lögin stendur enn. Umræðan er orðin sú lengsta um fjár­lögin nokkru sinni.

„Umræðan er fyrir löngu síðan orðin allt of löng,“ sagði Bjarni líka. Hann sagð­ist vera ósam­mála þeim sem segi að það sé allt í lagi að halda umræð­unni áfram. Hann væri líka ósam­mála þeim sem segðu að lík­lega yrði umræðu­metið sem sett hefur verið nú aldrei verið slegið. „Menn eru í algjörri sjálf­heldur hér og á meðan að menn eru í þessum spíral niður á við, þá getur eng­inn full­yrt að við séum búin að finna botn­inn.“ Það væri alveg eins lík­legt að við afgreiðslu fjár­laga á næsta ári eða eftir nokkur ár muni menn nota þetta slæma for­dæmi til að rétt­læta „enn lengri og vit­laus­ari“ umræðu.

Þingmenn minni­hlut­ans mót­mæltu þess­ari ræðu Bjarna. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að það væru efn­is­legar ástæður fyrir lengd umræð­unnar og Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, rifj­aði upp að það met sem stjórn­ar­and­staðan hefur slegið núna hafi verið sett árið 2012, af núver­andi stjórn­ar­flokkum meðal ann­ars. Þá hafi engar sér­stakar efn­is­breyt­ingar verið lagðar til, heldur hafi til­gang­ur­inn með langri umræðu verið að „ganga end­an­lega frá stjórn­ar­skránni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár