Svona vill Þórólfur hafa umgengnina í ræktinni

Á morgun verður slakað tölu­vert á tak­mörk­unum inn­an­lands þar sem far­ald­ur­inn er „í mik­illi lægð“ líkt og sótt­varna­læknir orðar það í minn­is­blaði sínu til ráð­herra. Þar fer hann ítar­lega yfir til­lögur um hvernig beri að haga sér í rækt­inni.

Eftir æfingu þurfa allir að sótthreinsa hendur og þann búnað sem þeir hafa notað.
Eftir æfingu þurfa allir að sótt­hreinsa hendur og þann búnað sem þeir hafa notað. Mynd: Pexels

Í nýjasta minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis kennir ýmissa grasa að vanda enda leggur hann í því til tölu­verðar tak­mark­anir á gild­andi reglum. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur gefið út reglu­gerð í sam­ræmi við til­lögur hans og taka hinar nýju reglur um sam­komur fólks hér á landi gildi þegar á morgun.

Breyt­ing­arnar eru fjöl­margar en hér verður sér­stak­lega fjallað um þær sem snerta lík­ams­rækt­ar­stöðvar en þær, líkt og vín­veit­inga­staðir lúta sér­stökum tak­mörk­unum vegna sér­stakrar smit­hættu. Í þriðju bylgju far­ald­urs­ins komu stór hópsmit upp bæði á krá og í lík­ams­rækt­ar­stöð.

[adspot]

Í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra segir að gesta­fjöldi á heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvum og sund- og bað­stöðvum skuli aldrei vera meiri en 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta sam­kvæmt starfs­leyfi. Sé hámarks­fjöldi ekki skráður í starfs­leyfi skal miða gesta­fjölda við helm­ing þess fjölda sem bún­ings­klefar gera ráð fyrir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gesta­fjölda.

Í hverju rými skulu ekki vera fleiri en að hámarki 50 manns. Skulu við­skipta­vinir skráðir fyr­ir­fram og skal sótt­hreinsa tæki og áhöld á milli not­enda. Áfram gildir tveggja metra nálægð­ar­regla. Tekið er fram í reglu­gerð­inni að sótt­varna­læknir gefi út nán­ari leið­bein­ingar.

Í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra er nokkuð langur kafli um til­lögur Þórólfs að umgengni í lík­ams­rækt­ar­stöðvum. Samkvæmt þeim þurfa gestir t.d. að sótt­hreinsa hendur að minnsta kosti þrisvar á meðan heim­sókn þeirra stendur og ekki dvelja í hús­inu lengur en í níu­tíu mín­útur.

Tillögur Þórólfs eru eft­ir­far­andi:

a. Sótt­hreinsun bún­aðar á milli not­enda verði á ábyrgð rekstr­ar­að­ila.

b. Tækja­sölum skuli skipt í rými þar sem 50 manna hámark sé í hverju rými. Gæta skuli að 2ja metra nálægð­ar­reglu og þess gætt að loft­ræst­ing sé góð.

c. Allir séu fyr­ir­fram­skráðir í tíma þannig að skrán­ing sé til yfir hver var hvar og hvenær og smitrakn­ing því auð­veld.

[links]d. Hver tími sé að hámarki 60 mín­útur og við­vera hvers iðkanda í húsi sé því aldrei lengri en 90 mín­útur.

e. Við komu í hús sé tryggt að allir sótt­hreinsi hendur og beri grímur þar til æfing hefst.

f. Eftir æfingu sótt­hreinsi allir hendur áður en bún­aður er sótt­hreins­aður.

g. Eftir æfingu (þegar hendur hafa verið sótt­hreins­aðar) sótt­hreinsi allir þann búnað sem þeir not­uðu. Rekstr­ar­að­ili ber ábyrgð á sótt­hreinsun bún­aðar.

h. Við útgöngu sótt­hreinsi fólk hendur.

i. Engir tveir tímar liggja saman svo tveir hópar eru ekki að mæt­ast í rýmum húss­ins, eins og and­dyri.

j. Milli hópa séu sal­erni, vaskar og aðrir snertifletir sótt­hreins­aðir af starfs­manni.

k. Í sam­eig­in­legum rýmum skal tryggja 2ja metra nálægð­ar­reglu og þegar því verður ekki við komið skal and­lits­gríma notuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár