Heilbrigðisráðherra segir undirskriftirnar styrkja málflutning sinn

Heil­brigð­is­ráð­herra segir und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið styrkja hann í stöðu sinni til að fjár­magna heil­brigð­is­þjón­ust­una. Und­ir­skrifta­söfn­unin sýni að þörf er á for­gangs­röðun hjá öllum. Um 68.000 hafa skrifað undir.

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra seg­ist taka mark á und­ir­skriftum Kára Stef­áns­sonar, rétt eins og hann taki mark á öðru sem kemur að efl­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Um 68.000 hafa skrifað undir und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið þegar þetta er skrifað.

„Þetta styrkir mig að sjálf­sögðu í þeirri vinnu sem mér ber að sinna til að leita leiða til að fjár­magna heil­brigð­is­þjón­ust­una,” segir Kristján Þór í sam­tali við Kjarnann. „Og söfn­unin und­ir­strikar þá alvöru sem er í umræð­unni um þennan mála­flokk.” 

Spurður hvort hann muni beita sér meira fyrir efl­ingu mála­flokks­ins í ljósi þess fjölda sem hefur sett nafn sitt við söfn­un­ina seg­ist hann munu gera það sem sama hætti og áður. 

„Ég hef barist fyrir efl­ingu þessa mála­flokks eins og aðrir ráð­herrar,” segir hann. „Því það er ljóst að við eigum að gera betur þar.” 

Allir þurfi að forgangsraða

Kristján segir að þátt­taka almenn­ings og umræðan geri kröfu um for­gangs­röðun á alla sem koma að heil­brigð­is­kerf­inu, ekki bara stjórn­mála­menn.

„Sú staða er komin upp að það þarf að for­gangs­raða og velja á milli. Fólk verður að vera til­búið að gefa eftir á sínu sviði til að auka hlut ann­ars,” segir hann. „Þetta gerir bæði kröfu á stjórn­mála­menn og almenn­ing um að hugur fólks bein­ist á þessar brautir. Að heil­brigð­is­málin séu í for­gangi.”

Vantar um 1.800 til að komast í fyrsta sæti

Und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­sonar, End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið, er orðin sú næst­stærsta í sög­unni. Stærsta und­ir­skrifta­söfn­unin til þessa er Hjartað í Vatns­mýr­inni, sem var til stuðn­ings þess að halda flug­vell­inum í Vatns­mýri. 69.809 manns skrif­uðu undir þá und­ir­skrifta­söfnun. Fjöldi hjá Kára var um 68.000 þegar þetta er skrifað. Það vantar því um 1.800 und­ir­skriftir til að sú kom­ist í fyrsta sæti.

End­ur­reisum heil­brigð­is­kerfið snýst um að íslensk stjórn­völd verji 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í rekstur heil­brigð­is­kerf­is­ins. Núver­andi hlut­fall er í kring um 8,7 pró­sent.

Kári sagði við RÚV, þegar 60.000 und­ir­skriftum var náð, að hann haldi að það þurfi tölu­vert meira til að skjóta stjórn­völdum skelk í bringu. Hann hefur einnig átt, eins og frægt er orðið, í ítrek­uðum rit­deilum við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra um málið, og reyndar önnur mál líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár