BHM kærir ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna lögbanns á verkföll

Bandalag háskóla­manna hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir hönd átján aðild­ar­fé­laga sinna. Kæran lýtur aðal­lega að lögum sem sett voru á verk­föll þess­ara félaga í sumar, en Alþingi sam­þykkti lög sem bönn­uðu verk­föll þeirra í júní.

„Þá mun reyna á það fyrir dóm­stólnum hvort íslensk stjórn­völd hafi brotið gegn Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu með inn­gripi sínu í samn­ings­frelsi stétt­ar­fé­laga,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá BHM.

Uppfylla þarf nokkur skil­yrði til þess að kæra fyrir Mann­rétt­inda­dóms­stóli Evrópu telj­ist tæk til efn­is­með­ferðar. „Á næstu mán­uðum mun koma fram hvort dóm­stól­inn telur kæruna tæka. Máls­með­ferðin er taf­söm og ekki liggur fyrir hvenær BHM fær upp­lýs­ingar um það hvort málið fái fram­gang.“

Forsaga máls­ins er sú að kjara­deilu aðild­ar­fé­laga BHM var vísað til rík­is­sátta­semj­ara í lok mars. Haldnir voru 24 fundir sem báru ekki árangur. Þann 13. júní síð­ast­lið­inn voru sam­þykkt lög á Alþingi sem bönn­uðu verk­föll Félags geisla­fræð­inga, Félags líf­einda­fræð­inga, Ljós­mæðra­fé­lagss Íslands, Félags íslenskra nátt­úru­fræð­inga, Stétt­ar­fé­lags lög­fræð­inga hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Stétt­ar­fé­lags háskóla­manna á mat­væla- og nær­inga­sviði, Dýra­lækn­inga­fé­lags Íslands hjá Mat­væla­stofnun og Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins hjá Fjár­sýslu rík­is­ins. Þegar lög voru sett höfðu verk­falls­að­gerðir staðið yfir í á þriðja mánuð.

BHM taldi laga­setn­ing­una fela í sér ólög­mætt inn­grip í starf­semi frjálsra, lög­legra félags­sam­taka og fór með málið fyrir dóm­stóla. Um miðjan júlí var íslenska ríkið sýknað af kröfum BHM í hér­aðs­dómi Reykja­víkur og var það nið­ur­staða dóms­ins að rík­inu hafi verið heim­ilt að setja lög á verk­fallið. Í ágúst stað­festi svo Hæsti­réttur þann dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár