Sigurður Ingi ekki spenntur fyrir myndun stjórnar til hægri

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ist ekki telja að rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins myndi svara því kalli að mynda rík­is­stjórn með breiða skírskotun sem tryggði póli­tískan stöð­ug­leika.

Sigurður Ingi Jóhannsson virðist ekki líklegur til að mynda stjórn til hægri með Gunnari Braga Sveinssyni og fleiri fyrrverandi samherjum sínum í Miðflokknum.
Sigurður Ingi Jóhanns­son virð­ist ekki lík­legur til að mynda stjórn til hægri með Gunnari Braga Sveins­syni og fleiri fyrr­ver­andi sam­herjum sínum í Mið­flokknum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er ekki spenntur fyrir því að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins. Þetta kemur fram á mbl.is. Þar segir hann að ekki sé hægt að úti­loka eitt eða neitt við myndun starf­hæfrar rík­is­stjórnar, en að á sama tíma hafi hann „lagt áherslu á að rík­is­stjórn í land­inu, til að búa til póli­tísk­an stöðug­leika, þurfi breið­ari skír­skot­un. Ég get ekki séð að hún myndi svara því kalli.“

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sleit fyrr í dag við­ræðum við þrjá aðra flokka; Vinstri græn, Sam­fylk­ingu og Pírata, um myndun rík­is­stjórnar sem hefði haft 32 þing­menn, eða minnsta mögu­lega meiri­hluta. Ástæðan var sú að Framsókn taldi meiri­hlut­ann of tæpan í ljósi þeirra verk­efna sem væru fram undan, og töldu þar sér­stak­lega til kom­andi kjara­við­ræður. Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að flokk­ur­inn hafi sér­stak­lega ekki treyst því að Píratar myndu geta staðið á bak við fjög­urra flokka rík­is­stjórn­ina. í ljósi þeirra mála­miðl­ana sem Píratar virt­ust til­búnir að gera til að klára við­ræð­urnar þá skap­að­ist ótti við að bak­land þeirra myndi telja flokk­inn hafa gefið of mikið eftir. Þá gætu skap­ast sam­bæri­legar aðstæður og voru uppi hjá Bjartri fram­tíð á síð­asta kjör­tíma­bili, sem leiddu til stjórn­ar­slita eftir átta mán­aða rík­is­stjórn­ar­sam­starf.

Sigurður Ingi segir við mbl.is að það hafi verið rætt í stjórn­ar­mynd­un­ar­ferl­inu að fá fleiri flokka um borð í við­ræð­urnar en að nið­ur­staðan áður en form­leg­ar við­ræður hóf­ust hafi verið að flækj­u­stigið yrði of mikið ef fleiri flokk­um yrði boðið í við­ræð­urn­ar.

Heim­ildir Kjarnans herma að stungið hafi verið upp á því að bjóða Viðreisn inn í mögu­lega rík­is­stjórn til að koma í veg fyrir við­ræðu­slit en að sú til­laga hafi ekki hlotið hljóm­grunn hjá Fram­sókn­ar­flokknum.

Sigurður Ingi segir að bolt­inn sé nú hjá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, sem hafi enn stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð, að minnsta kosti þar til síðar í dag þegar hún fer á fund Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands. Katrín hefur sagt að hún muni nota dag­inn til að kanna aðra mögu­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár