Sjálfstæðisflokkur sigurvegari en stjórnin fallin

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk afger­andi besta kosn­ingu í Alþing­is­kosn­ing­unum, en þegar þetta er skrifað er fylgi hans 29,5 pró­sent sem gefur honum 21 þing­mann. Framsókn og Sam­fylk­ingin töp­uðu miklu fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur 29,5 pró­sent fylgi og 21 þing­mann, þegar þetta er ritað (3:54), og telst ótvíð­ræður sigu­veg­ari Alþing­is­kosn­ing­anna sé horft til heild­ar­fylgis flokk­anna. Vinstri græn bæta hins vegar við sig 5 þing­mönnum og Píratar 6.

Rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, er fallin þar sem Framsókn er ekki með nema 11,4 pró­sent fylgi og 8 þing­menn. Til þess að fá meiri­hluta þurfa rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir að fá sam­tals 32 þing­menn, en sam­tals eru 63 þing­menn á Alþingi, en flokk­arnir ná 29 þing­menn.

Vinstri græn eru með 16,2 pró­sent á lands­vísu og 11 þing­menn, Björt fram­tíð 7,4 pró­sent og fjóra þing­menn, Píratar 13,6 pró­sent og 9 þing­menn og Sam­fylk­ingin 6,1 pró­sent og fjóra þing­menn. Viðreisn, sem kemur ný inn á þing, er með 10,2 pró­sent fylgi og fengi sex þing­menn.

Óhætt er að segja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin séu þeir tveir flokkar sem koma verst út úr kosn­ing­unum. Í kosn­ing­unum 2013 var Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna með tæp­lega fjórð­ungs fylgi en Sam­fylk­ingin fékk í þeim kosn­ingum sína verstu kosn­ingu frá stofnun með ríf­lega 12 pró­sent fylgi. Útkoman er enn verri nú, en fylgið er nú 6,1 pró­sent.

Allt stefnir í að útkoma Fram­sókn­ar­flokks­ins verði sú versta í 100 ára sögu flokks­ins.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í spjalli for­manna flokks­ins í sjón­varps­sal að eðli­leg­ast væri að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leiddi næstu rík­is­stjórn, í ljósi kosn­ing­anna, en að öðru leyti gaf hann ekki neinar afger­andi yfir­lýs­ingar um hvernig hann vildi skipa næstu rík­is­stjórn.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði skila­boð kosn­ing­anna vera þau að óskað væri eftir fjöl­breytni í stjórn­mál­unum. Á það þyrfti að hlusta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár