Lionel Messi fær 21 mánaðar dóm fyrir skattsvik

Lionel Messi, besti fót­bolta­maður heims­ins og lyk­il­mað­ur­ Barcelona og argentíska lands­liðs­ins, fékk í dag 21 mán­aðar fang­els­is­dóm fyrir skatt­svik. Samkvæmt spænskum lögum eru allir dómar sem fela í sér minna en tveggja ára fang­els­is­vist skil­orðs­bundnir og því er ekki búist við því að Messi þurfi að sitja inni.

Í mál­inu voru Messi og faði hans sak­aðir um skatt­svik upp á rúm­lega fjórar millj­ónir evra, eða sem nemur um 560 millj­ónum króna. Hinn 29 ára gamli Messi hélt fram sak­leysi sínu við efn­is­með­ferð máls­ins. Sam­tals, með vöxt­um, nemur fjár­hæðin 4,7 millj­ónum evra, um 660 millj­ónum króna.

Kjarninn greindi frá vitna­leiðslum í mál­inu í byrjun júní. Þar sagði Messi: „Ég vissi ekk­ert um þetta, ég hugs­aði bara um fót­bolt­ann.“ ­Jorge, faðir hans, sagði svip­aða sögu. Nema hvað hann játti því að sjá um fjár­hags­leg mál­efni fyrir son sinn. Hann hefði hins vegar með engum hætti kom­ið að þeim fjár­mála­gjörn­ingum sem málið snýst um, sem eru skattaund­an­skot í gegn­um Belís og Úrug­væ, með hjálpa aflands­fé­laga.

Pen­ing­arnir sem ekki voru gefnir upp til skatts vor­u greiðslur vegna styrkt­ar- og aug­lýs­inga­samn­ingar (image rights) Lionel Messi, á ár­unum 2007 til 2009. Sam­tals námu þær 10,1 millj­ónum evra, um 1,4 millj­örð­u­m króna. Þetta voru meðal ann­ars greiðslur frá Pepsi, Procto & Gamble og A­di­di­as.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár