Eygló segir upplýsingar frá fjármálaráðuneyti um frumvarp ekki eiga við rök að styðjast

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, seg­ist ekki hafa fallið frá áformum sínum um að leggja fram frum­varp sitt um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða. Þetta segir hún í frétt á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Hún segir að fréttir fjöl­miðla um að frum­varpið hafi verið dregið til baka eigi ekki við rök að styðj­ast.

Fjár­mála­ráðu­neytið greindi hins vegar frá því í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í dag að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi fallið frá því undir lok apríl að leggja fram frum­varpið í þáver­andi mynd. Vel­ferða­ráðu­neytið hafi síðan þá haft til skoð­unar að leggja fram annað frum­varp „með tals­vert breyttri útfærslu,“ eins og sagði í svar­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið sagði hins vegar að það megi „telja ósenni­legt úr því sem komið er að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi um þennan mála­flokk ásamt umsögn um fjár­hags­á­hrif til fram­lagn­ingar á vor­þingi.“

Það er því ekki sam­hljómur um það meðal ráðu­neyta hver staða máls­ins er. Í frétt­inni á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins segir Eygló að ekki sé hægt að segja fyrir hvort breyt­ingar verði gerðar á frum­varp­inu en það muni skýr­ast á næst­unni. Kjarninn hefur óskað eftir við­tali við Eygló Harð­ar­dóttur.

Samkvæmt starfs­á­ætlun þings­ins eru fimm og hálfur þing­funda­dagur eftir af þessu þingi, auk eld­hús­dags.

Vakti hörð viðbrögð á þingi


Frétt Kjarnans um svör fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins var gerð að umtals­efni á Alþingi í dag, þegar verið var að ræða ramma­á­ætlun. Eins og greint hefur verið frá hafa stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lýst furðu sinni á því að verið væri að ræða ramma­á­ætlun þriðja dag­inn í röð, í stað þess að ræða um kjara­mál og ein­hver þeirra stóru frum­varpa sem rík­is­stjórnin hefur boðað að eigi að koma fram á þessu þingi.

Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagð­ist velta því fyrir sér í kjöl­far frétta af frum­varpi Eyglóar að verið væri að ræða ramma­á­ætlun „til þess að breiða yfir það að menn eru orðnir getu- og hug­mynda­lausir þegar kemur að því með hvaða hætti menn eiga að nálg­ast þessi erf­iðu mál á vinnu­mark­aði.“ Undir þetta tóku meðal ann­ars þær Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir þing­menn VG. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, lýsti furðu sinni á því að búið væri að draga til baka frum­varpið án þess að ræða við nefnd­ina. „Mér finnst þetta full­komin van­virð­ing við vel­ferð­ar­nefnd og þing­menn og ætl­ast til þess að for­seti fari yfir þessi mál“ með félags­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár