Íslenskt vinnuafl mun aðeins ná 74 prósent af mögulegri afkastagetu í framtíðinni

Nýr mæli­kvarði Alþjóða­bank­ans metur hversu mikið núver­andi fram­lög stjórn­valda til mennt­unar og heilsu leiðir til árang­urs fram­tíð­ar­starfs­manna. Ísland mælist neðst af öllum Norð­ur­lönd­unum.

Börn að læra
Börn að læra Mynd: Pexels

Alþjóða­bank­inn hleypti nýjum mæli­kvarða – human capital index – af stokk­unum í gær. Mæli­kvarð­inn mælir hvernig lönd standa sig þegar það kemur að menntun og heil­brigði íbúa sinna. Barn fætt á Íslandi dag mun í fram­tíð­inni aðeins ná 74 pró­sent af mögu­legri afkasta­getu, þ.e.a.s. ef það hlyti bestu menntun og nyti heillar heilsu, sam­kvæmt nýjum mæl­ingum Alþjóða­bank­ans.

Í skýrslu frá bank­anum segir að þessi nýi mæli­kvarði sé til­raun til að hvetja lönd út um allan heim til að auka fjár­magn til heil­brigð­is­þjón­ustu og mennt­unar með það að mark­miði að skapa kyn­slóð sem er meira und­ir­búin í vinnur fram­tíð­ar­innar. Að með­al­tali munu 56 pró­sent af börnum fæddum í heim­inum dag fara á mis við helm­ing af sínum mögu­legum ævi­tekju, af því stjórn­völd eru ekki að fjár­festa nóg í heilsu og menntun íbúa sinna, sam­kvæmt skýrsl­unni. Löndin sem koma best út eru Singa­pore, Suður Kórea, Japan, Hong Kong og Finnland. Löndin sem koma verst út eru Tjsad, Suður-Súdan, Níger, Malí, Líbería og Nígería.

Ísland stendur sig illa í alþjóðlegum prófum

Þeir mæli­kvarðar sem teknir eru inn í reikn­ing­inn eru dán­ar­tíðni barna undir fimm ára aldri, ævi­líkur 15 ára barna, áætluð ár í skóla og frammi­staða nem­enda í alþjóð­legum prófum. Ísland stendur sig vel þegar það kemur að heilsu en sam­kvæmt mæli­kvarð­anum er 95 pró­sent líkur á að 15 ára mann­eskja muni lifa til sex­tugs á Íslandi og 100 pró­sent íslenskra barna sem fæð­ast verði fimm ára.

Hins vegar dregur mennta­stuðlinn okkur niður list­ann. Mennta­stuð­ul­inn á að sýni gæði og magn mennt­unar í landi, reiknuð eru áætluð ár í skóla og frammi­staða í alþjóð­legum prófum. Áætluð ár í skóla hér á landi eru 13,4 ár en þar er reiknað með hversu mörg ár ein­stak­lingur er í skóla frá 4 til 18 ára ald­urs. Á Íslandi eru það 13,4 ár, sam­kvæmt þeirra mæl­ingum en þegar ár í skóla eru aðlöguð að gæðum mennt­unar, sem reikn­ast út frá alþjóð­legum prófum, þá eru þessi 13,4 ár í skóla metin sem 10,7 ár hér á landi.

Ástæðan fyrir því að Ísland stendur sig ekki betur á þessum mæli­kvarða er vegna þess hversu lágt Íslend­ingar skora á alþjóð­legum próf­um. Í ákveðnum alþjóð­legum sam­ræmdum próf­um, PISA, eru íslenskir nem­endur að skora 497 stig af 625 stig­um. Til við­mið­unar mæld­ist Ísland árið 2000 með 523 stig í alþjóð­legum prófum í heild­ina, strákar 516 og stelpur 530. Með árunum hafa Íslend­ingar lækkað nán­ast stöðugt og árið 2015 mæl­umst þeir með 497 í heild­ina, strákar 489 og stelpur 504. 

Ísland neðst af Norðurlöndum

Á Ísland hefur HCI-stuðlinn hækkað úr 0,73 í 0,74 frá 2012 til 2017. Samkvæmt mæl­ingum Alþjóða­bank­anum stendur Ísland sig betur en lönd með álíka verga lands­fram­leiðslu en Íslend er neðst allra Norð­ur­land­anna. Singa­pore, sem stendur sig best af öllum löndum heims, mælist með 0,88 í HCI, sem sagt 88 pró­sent af mögu­legri fram­tíð­ar­fram­leiðni. Til við­mið­unar mæl­ast Noregur og Danmörk með 0,77 og Svíþjóð 0,8. Fleiri lönd sem mæl­ast hærra en við eru Banda­ríkin, Bretland, Portúgal, Serbía og Írland. Tsjad, sem er neðst á list­anum, nær aðeins 29 pró­sentum af hvað mögu­legt væri ef menntun og heil­brigð­is­þjón­usta væri sem á best væri kosið.

Efnahagslegir ávinningar

Alþjóða­bank­inn lýsir mannauð (e.human capital) sem sam­safni af þekk­ingu, kunn­áttu og heilsu sem geri fólki kleift að vera virkir með­limir í sam­fé­lag­inu. Með þessum nýja mæli­kvarða vill Alþjóða­bank­inn sýna fram á þá efna­hags­legu ávinn­ing­ana sem hlyt­ust af því að fjár­festa meira í menntun og heilsu. Bankinn bendir á hversu gíf­ur­lega mik­il­vægt það er að vinnu­afl fram­tíð­ar­innar sé vel menntað og heil­brigt þar sem við búum á tímum þar íbúum heims fjölgar gíf­ur­lega hratt og tækni­legar fram­farir eru miklar.

Samkvæmt heim­ildum bank­ans þá þýðir eitt auka ár í skóla að fram­tíð­ar­tekjur við­kom­andi hækki um átta pró­sent. Sem dæmi er tekið barn sem hlýtur aðeins 9 ár af menntun en þá má það búast við því að verði 40 pró­sent afkastam­inna sem full­orð­inn ein­stak­lingur en þeir sem ná 14 árum í skóla.

Mælikvarðinn með sínar takmarkanir

Í skýrsl­unni, þar sem mæli­kvarð­inn er kynntur, er þó bent á að HCI hafi sínar tak­mark­anir, til dæmis komi alþjóð­legu ein­kunn­irnar frá mis­mun­andi alþjóð­legum prófum en ekki sé endi­lega sam­ræmi milli ald­urs og þess sem prófað er í. Einnig séu gögnin mis­mikil frá löndum og geti því vantað inn eitt og eitt ár. En sam­kvæmt Alþjóða­bank­anum þá er „human capital index” ekki mæli­kvarði á vel­ferð heldur frekar mæli­kvarði á hversu mikið núver­andi fram­lag stjórn­valda til mennt­unar og heilsu leiðir til árang­urs á afkasta­getu fram­tíð­ar­starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár