Segir Kínverja bera mesta ábyrgð á hitnandi loftslagi

Lofts­lags­er­ind­reki Banda­ríkj­anna seg­ist þess full­viss um að Kín­verjar geti gert betur í að minnka losun. Frá því að Par­ís­ar­sam­komu­lagið var und­ir­ritað hafa nið­ur­greiðslur Banda­ríkja­manna til vinnslu jarð­efna­elds­neytis auk­ist.

John Kerry er loftslagserindreki Bandaríkjanna.
John Kerry er lofts­lags­er­ind­reki Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Ríki heims geta enn komið í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga svo lengi sem stjórn­völd ganga lengra í skuld­bind­ingum sínum um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á næstu mán­uðum, að mati John Kerry lofts­lags­er­ind­reka Banda­ríkj­anna. Í ræðu sem Kerry hélt í Kew Gardens í London hvatti hann ríki heims til þess að leggja fram nýjar áætl­anir um minnkun los­unar áður en lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, Cop 26, verður sett í Glasgow í nóv­em­ber.

Kerry sagði lofts­lags­vána vera eitt af stærstu vanda­málum sam­tím­ans. Með því að minnka veru­lega úr losun á þessum ára­tug væri enn hægt að tryggja það að mark­miðið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um að halda hækkun hita­stigs fyrir innan 1,5 gráður.

Gagnrýndi Kínverja

Kerry beindi spjótum sínum sér­stak­lega að Kína í ræðu sinni. Hann sagði Kínverja vera orðna þá þjóð sem bæri mesta ábyrgð á lofts­lags­breyt­ingum. Þá sagði hann skuld­bind­ingar Kínverja ekki ganga nógu langt en þær kveða á um að losun Kínverja muni ná hámarki árið 2030 og fara lækk­andi eftir það.

„Ef Kína heldur áfram að fylgja núver­andi áætlun og nær hámarki útblást­urs ekki fyrr en árið 2030 þá þarf restin af heim­inum að ná kolefn­is­hlut­leysi árið 2040 eða jafn­vel árið 2035,“ er haft eftir Kerry í frétt BBC. Hann sagð­ist vera full­viss um að Kína gæti gengið lengra en núver­andi skuld­bind­ingar þeirra segja til um og að Banda­ríkin væru mjög viljug til þess að aðstoða við það verk­efni. Ómögu­legt væri að halda hlýnun fyrir innan 1,5 gráður án metn­að­ar­fyllri mark­miða frá Kín­verjum.

Kerry sagði að öll stærstu hag­kerfi heims þyrftu að gera betur og leggja meiri metnað í lofts­lags­málum næsta ára­tug­inn.

Bandaríkin hafa aukið niðurgreiðslu til framleiðslu jarðefnaeldsneytis

Frá því að Par­ís­ar­sam­komu­lagið var und­ir­ritað hafa nið­ur­greiðslur G20 ríkj­anna til kola-, olíu- og gasvinnslu numið meira en 3,3 billjónum Banda­ríkja­dala. Þetta meðal nið­ur­staða í nýrri skýrslu um hlýnun lofts­lags­ins. Samkvæmt umfjöllun The Guardian um skýrsl­una bera G20 ríkin ábyrgð á nær þremur fjórðu af útblæstri heims­ins.

Í skýrsl­unni kemur fram að nið­ur­greiðsl­urnar hafi dreg­ist saman um sem nemur tveimur pró­sentum á hverju ári frá árinu 2015 en þær námu um 636 millj­örðum Banda­ríkja­dala árið 2019. Þrátt fyrir að sam­dráttur mælist þegar horft er til allra G20 ríkj­anna er það ekki svo að þau hafi öll dregið úr nið­ur­greiðslum til vinnslu jarð­efna­elds­neytis. Á milli árana 2015 og 2019 juk­ust nið­ur­greiðslur til elds­neyt­is­iðn­að­ar­ins í Ástralíu um 48 pró­sent og um 37 pró­sent í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár