Þingflokkarnir efna til metoo-fundar

Stjórn­mála­flokk­arnir átta sem eiga full­trúa á Alþingi bjóða til morg­un­verð­ar­fundar þann 18. mars næst­kom­andi. Markmið fund­ar­ins er að ræða metoo og stjórn­mál. Pall­borðsum­ræður verða með full­trúum frá öllum stjórn­mála­flokkum, þar á meðal Mið­flokknum.

Stjórn­mála­flokk­arnir átta sem eiga full­trúa á Alþingi hafa tekið sig saman og efnt til metoo-morg­un­verð­ar­fundar á Grand Hótel Reykja­vík mánu­dag­inn 18. mars. Athygli vekur að Mið­flokk­ur­inn er hluti af hópnum en flokk­ur­inn hefur legið undir ámælum vegna klaust­urs­máls­ins. Samkvæmt sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá flokk­unum er fund­ur­inn boð­aður í kjöl­far #metoo bylt­ing­ar­innar en yfir­lýst mark­mið fund­ar­ins er að ræða metoo og stjórn­málin.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun opna fund­inn með ávarpi og fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­þing­mann­sam­bands­ins mun halda erindi um nið­ur­stöður rann­sóknar á kyn­ferð­is­of­beldi og áreiti innan þjóð­þinga Evrópu. Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, mun síðan stýra pall­borðsum­ræðum með full­trúum allra flokka í kjöl­far erind­anna. Athygli er vak­inn á því að fund­ur­inn er opin öllum og án end­ur­gjalds.

85 prósent þingkvenna hafa upplifað kynbundið, andlegt ofbeldi á þjóðþingum

Sér­stakur gestur á morg­un­verð­ar­fund­inum verður Martin Chungong, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins (IPU). Hún mun kynna skýrslu um nið­ur­stöður viða­mik­illar rann­sóknar Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins og Evr­ópu­ráðs­þings­ins á kynja­mis­munun og kyn­bundnu ofbeldi og áreiti gegn konum í þjóð­þingum í Evrópu.

Í til­kynn­ing­unni segir að nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar séu slá­andi þar sem 85 pró­sent þing­kvenna sem tóku þátt í rann­sókn­inni höfðu upp­lifað ein­hvers konar kyn­bundið, and­legt ofbeldi á þjóð­þingum. Samkvæmt rann­sókn­inni eru þing­konur undir 40 ára aldri eru lík­legri til að verða fyrir áreiti og kven­kyns starfs­menn þinga verða frekar fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi en þing­konur.

Nið­ur­stöð­urnar sýna jafn­framt að í flestum til­vikum skorti vett­vang þar sem konur geta tjáð sig um ofbeldið sem þær verða fyrir. Skýrslan er sú fyrsta í röð svæð­is­bund­inna rann­sókna sem alþjóða­sam­bandið stendur fyrir um kyn­bundið ofbeldi og áreiti gagn­vart konum í þjóð­þingum heims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár