Þriðja hver íbúð sem er í byggingu í Reykjavík er í 101

Um fimm þús­und íbúðir eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, af þeim eru um tvö þús­und íbúðir í bygg­ingu í 101 Reykja­vík, Garðabæ og í póst­núm­er­inu 200 í Kópavogi. Fram­kvæmda­stjóri SI gagn­rýnir hversu hlut­falls­lega fáar íbúðir séu byggðar á ódýr­ari svæðum.

Rúmlega þriðja hver íbúð sem er í byggingu í Reykjavík er í póstnúmerinu 101, þar eru meðtaldar íbúðir við Hlíðarenda í Vatnsmýri. Alls eru nú 4988 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu en um 40 prósent þeirra eru í 101 Reykjavík, Garðabæ og í Kópavogi. Samtök iðnaðarins telja að stór hluti þeirra íbúða sem eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu séu ekki í takt við eftirspurn eftir ódýrari íbúðum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Lágt hlutfall nýrra íbúða á ódýrari svæðum

Í nið­ur­stöðum átaks­hóps rík­is­stjórn­ar­innar um aukið fram­boð á íbúðum kom fram að óupp­fyllt íbúða­þörf á land­inu öllu er nú um 5000 til 8000 íbúðir. Mikil upp­bygg­ing er hins vegar fyr­ir­huguð á næstu árum og er áætlað að um 10.000 íbúðir verði byggðar á árunum 2019 til 2021. Gangi þær áætl­anir eftir mun óupp­fyllt íbúða­þörf verða um 2.000 íbúðir í upp­hafi árs 2022.

Sam­kvæmt grein­ingu Sam­taka iðn­að­ar­ins eru nú um fimm þús­und íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í sam­tali við Morg­un­blaðið bendir Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, á að þegar skoðað sé hvar íbúða­bygg­ing eigi sér stað þá megi sjá hversu hlut­falls­lega fáar íbúðir séu í bygg­ingu á ódýr­ari svæðum. Aftur á móti sé fyrst og fremst þörf fyrir hag­kvæm­ari íbúðir. „Það hefur verið bent á að það þarf íbúðir fyrir yngra fólk sem er að koma inn á mark­að­inn og fyrir tekju­lága og eigna­lága ein­stak­linga. Og síðan minni íbúðir fyrir eldra fólk sem vill minnka við sig. Ég fæ ekki séð að þessi þörf birt­ist í íbúðum í bygg­ingu í Reykja­vík,“ segir Sigurður. [adspot]

Hann gagn­rýnir sveit­ar­fé­lögin fyrir að bregð­ast ekki hraðar við þörf­inni og auka fram­boð íbúða fyrir tekju­lága „Það eru fyrst og fremst póli­tískar áherslur sem leiða fram þessa nið­ur­stöðu. Það sýnir vel þennan mark­aðs­brest að af um 5 þús­und íbúðum sem eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skuli um þús­und íbúðir vera í bygg­ingu í 101 Reykja­vík. Það eru næstum því jafn margar íbúðir í bygg­ingu í póst­núm­er­inu og í öllum Kópavogi,“ segir Sigurður.

Dregið úr spennu á fasteignamarkaði og færri nýbyggingar seljast

[links]Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika segir að það sé farið að draga úr spennu á fast­eigna­mark­aði, og nú sé fram­boð hús­næðis að aukast umtals­vert á meðan það dregur úr eft­ir­spurn, þar sem kólnað hefur í hag­kerf­inu eftir mikla upp­gangs­tíma. Sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár, sem mælir þróun á fast­eigna­verði, þá lækk­aði fast­eigna­verð um 1 pró­sent í febr­ú­ar, miðað við sama tíma í fyrra. Útlit er fyrir að fast­eigna­verð geti lækkað nokk­uð, ef það heldur fram sem horf­ir, ef fram­boð af hús­næði vex nokkuð á sama tíma og eft­ir­spurn minnk­ar.

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­láns­sjóðs kemur fram að mun færri nýbygg­ingar hafa selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár sam­an­borið við sama tíma­bili í fyrra. Jafn­framt hafi hlut­falls­lega færri nýbygg­ingar verið seldar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar á þessu ári sam­an­borið við mán­uð­inn á und­an. Í febr­úar voru 11 pró­sent við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nýbygg­ingar en 16 pró­sent við­skipta í jan­ú­ar. Til sam­an­burðar var hlut­fall nýbygg­inga 17 pró­sent kaup­samn­inga í febr­ú­ar­mán­uði í fyrra og í jan­úar 2018 var hlut­fallið 33 pró­sent. Það sem af er ári hafa í heild­ina 120 nýbygg­ingar selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á sama tíma­bili í fyrra var sá fjöldi um 276.

Meðalupphæð á hvern kaupsamning 54 milljónir króna í mars

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga um fast­eignir við sýslu­manns­emb­ættin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í mars 2019 var 590, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Heild­ar­velta nam 31,9 millj­örðum króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing var 54 millj­ónir króna. Við­skipti með eignir í fjöl­býli námu 20,1 millj­arði, við­skipti með eignir í sér­býli 8,8 millj­örðum og við­skipti með aðrar eignir 3 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár