Færri nýbyggingar seldar á höfuðborgarsvæðinu

Mun færri nýbygg­ingar hafa selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár sam­an­borið við sama tíma­bili í fyrra. Það sem af er ári hafa 120 nýbygg­ingar selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á sama tíma­bili í fyrra var sá fjöldi um 276.

Hlut­falls­lega færri nýbygg­ingar voru seldar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar á þessu ári sam­an­borið við mán­uð­inn á undan. Í febr­úar voru 11 pró­sent við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nýbygg­ingar en 16 pró­sent við­skipta í jan­úar. Jafn­framt hafa mun færri nýbygg­ingar selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári en á sama tíma­bili í fyrra. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er þró­unin aftur á móti önnur en þar var hlut­fall nýbygg­inga 24 pró­sent í febr­úar. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Aukning í sölu nýbygginga utan höfuðborgarsvæðisins

Nýbygg­ingar eru skil­greindar af Íbúða­lána­sjóði sem íbúðir með skráð bygg­ing­arár sama og söluár eða árið þar á undan. Á milli mán­aða og milli ára má sjá hlut­falls­lega minni sölu nýbygg­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samkvæmt skýrsl­unni voru 11 pró­sent við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í febr­úar vegna kaupa á nýbygg­ingum sam­an­borið við 16 pró­sent við­skipta í jan­úar.

Til sam­an­burðar var hlut­fall nýbygg­inga 17 pró­sent kaup­samn­inga í febr­ú­ar­mán­uði í fyrra og í jan­úar 2018 var hlut­fallið 33 pró­sent. Það sem af er árinu hafa 120 nýbygg­ingar selst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á sama tíma­bili í fyrra var sá fjöldi um 276.

Á ákveðnum svæðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er þró­unin hins vegar önnur. Í febr­úar voru 24 pró­sent íbúða­við­skipta utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins vegna nýbygg­inga og það sem af er ári hafa 119 nýbygg­ingar selst þar en 83 fyrir ári síðan. Þá var hlut­falls­leg aukn­ing mest í Reykja­nesbæ og Hvera­gerði.

Mesta lækkun vísitölu íbúðaverðs í rúm átta ár

Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um 1,0 pró­sent í febr­úar sem er mesta mán­að­ar­lækkun frá des­em­ber 2010 þegar íbúða­verð lækk­aði um 1,2 pró­sent milli mán­aða. Vísitala íbúða­verðs mælir breyt­ingu á íbúða­verði sam­kvæmt und­ir­rit­uðum kaup­samn­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hverju sinni.

Í skýrsl­unni segir að nýbygg­ingar séu alla jafna dýr­ari en eldri íbúðir og gæti því hlut­falls­lega minni sala þeirra í febr­úar skýrt lækkun á vísi­tölu íbúða­verðs milli mán­aða. Árs­hækkun íbúða­verðs mælist nú 3,7 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en það er minnsta 12 mán­aða hækkun sem hefur mælst síðan í maí 2011.

6474 íbúðir í byggingu í mars

Óupp­fyllt íbúða­þörf á land­inu öllu er nú um 5.000 til 8.000 íbúðir, sam­kvæmt nið­ur­stöðu átaks­hóps rík­is­stjórn­ar­innar um aukið fram­boð á íbúðum. Mikil upp­bygg­ing er hins vegar fyr­ir­huguð á næstu árum og er áætlað að um 10.000 íbúðir verði byggðar á árunum 2019 til 2021. Gangi þær áætl­anir eftir mun óupp­fyllt íbúða­þörf verða um 2.000 íbúðir í upp­hafi árs 2022.

Samkvæmt grein­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins voru 6.474 íbúðir í bygg­ingu í mars 2019 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess og á Norð­ur­landi. Mikil aukn­ing hefur verið á íbúða­upp­bygg­ingu í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur, sér­stak­lega í Reykja­nesbæ en þar eru nú um 530 íbúðir í bygg­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár