Lét æskudrauminn rætast og hjálpar þúsund manns að eiga góð jól

Anna Pét­urs­dóttir hefur kynnst áskor­unum lífs­ins. Hún fékk heila­blæð­ingu í rækt­inni rúm­lega fer­tug sem hafði mikil áhrif á hana. Nú er hún í for­mennsku fyrir stjórn Mæðra­styrks­nefndar Reykja­víkur sem aðstoðar rúm­lega þús­und manns fyrir jólin.

Dreymdi um að hjálpa
Dreymdi um að hjálpa Eftir allt saman átti Anna Pét­urs­dóttir eftir að vinna fyrir mæðra­styrks­nefnd þegar hún varð full­orðin, eins og hana dreymdi um í barn­æsku. Mynd: Heiða Helgadóttir

Anna Pét­urs­dóttir var lít­ill krakki þegar hún heyrði talað um Mæðra­styrks­nefnd Reykja­víkur í fyrsta skipti.

„Ég man að ég stóð fyrir framan Rafha-elda­vél og var að hlusta á útvarpið með mömmu sem var að búa til mat­inn. Þá kom frétt um mæðra­styrks­nefnd og ég sagði við mömmu að þetta ætl­aði ég að gera þegar ég yrði stór.“

Þetta átti eftir að ræt­ast. En ekki fyrr en eftir að hún hafði þurft að ganga í gegnum mikla erf­ið­leika á lífs­leið­inni.

Anna bjó í Þýska­landi í sex ár og í Banda­ríkj­unum í sjö ár og fluttu hún og fjöl­skylda hennar aftur til Íslands haustið 1996 eftir nám og störf ytra. „Ég þrí­mjaðma­grind­ar­brotn­aði stuttu eftir að ég flutti heim en ég varð undir hesti.“

Fékk heilablæðingu í ræktinni

Ári eftir slysið fékk Anna heila­blæð­ingu. „Ég var í lík­ams­rækt og fékk rosa­legan höf­uð­verk. Ég er dálítið þrjósk og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár