Kvika hagnast um milljarð á fyrri árshelmingi

Hagnaður Kviku banka á fyrri árs­helm­ingi fyrir skatta nam 1.016 millj­ónum króna, þrátt fyrir mik­inn sam­drátt í fjár­fest­inga­tekjum.

Kvika banki hagn­að­ist um 1.016 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins, sam­kvæmt nýtúgefnu árs­helm­ings­upp­gjöri bank­ans. Nokkur aukn­ing var á vaxta- og þókn­ana­tekjum, en mik­ill sam­dráttur í fjár­fest­inga­tekjum

Hagnaður eftir skatta nam 924 millj­ónum króna og arð­semi eigin fjár eftir skatta nam 11,8 pró­sentum. Bæði vaxta- og þókn­ana­tekjur bank­ans juk­ust um u.þ.b. 3 pró­sent, á meðan rekstr­ar­kostn­aður hækk­aði um 0,5 pró­sent.

41 prósent samdráttur í fjárfestingatekjum

Hreinar fár­fest­inga­tekjur á fyrsta árs­helm­ingi námu 222 millj­ónum og er það 41 pró­senta sam­dráttur miðað við sama tíma­bil í fyrra. Á fyrsta árs­fjórð­ungi tap­aði bank­inn 157 millj­ónum í fjár­fest­ingum sínum, en hagn­að­ist svo um 379 millj­ónir á öðrum árs­fjórð­ungi.

Hrein virð­is­breyt­ing var nei­kvæð um 209 millj­ónir, en sam­kvæmt bank­anum var það aðal­lega vegna var­úð­ar­færslna vegna COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár