Neita að tjá sig um samskiptin við Hacking Team en ætla að „leiðrétta þarna misskilning“

Gunnar Rúnar Svein­björns­son, kynn­ing­ar­full­trúi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vildi ekki tjá sig um tölvu­póstana til Hacking Team í sam­tali við Stundina. Von er á frétta­til­kynn­ingu um málið.

Gunnar Rúnar Svein­björns­son, kynn­ing­ar­full­trúi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vill ekki tjá sig um sam­skipti Ragnars H. Ragn­ars­sonar, rann­sókn­ar­lög­reglu­manns hjá tölvu­rann­sókna- og raf­einda­deild lög­regl­unnar, við ítalska fyr­ir­tækið Hacking Team árið 2011 í sam­tali við Stundina. Wikileaks afhjúpaði fjölda tölvu­pósta frá fyr­ir­tæk­inu í gær og má þar meðal ann­ars sjá sam­skipti lög­reglu­manns­ins við starfs­mann Hacking Team. Stundin greindi frá mál­inu í gær. Fyr­ir­tækið selur stjórn­völdum um allan heim umdeilda tækni sem gerir þeim kleift að njósna um sam­skipti fólks í gegnum snjall­síma og tölvur. Sem fyrr segir vill Gunnar Rúnar ekki tjá sig um sam­skipti Ragnars við fyr­ir­tækið en segir í sam­tali við Stundina að von sé á frétta­til­kynn­ingu um málið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár