Greiða 12-15 milljónir króna fyrir hönnun og rekstur Ferðagjafar-forrits

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið samdi við fyr­ir­tækið YAY ehf. um hönnun og rekstur snjall­símafor­rits utan um ferða­gjöf stjórn­valda. Samkvæmt ráðu­neyt­inu hefur fyr­ir­tækið ekki heim­ild til að nýta upp­lýs­ingar sem safn­ast frá not­endum apps­ins.

Ferðagjöf stjórnvalda er nú aðgengileg, bæði í snjallsímaforriti og með strikamerki á Ísland.is
Ferða­gjöf stjórn­valda er nú aðgengi­leg, bæði í snjall­símafor­riti og með strik­a­merki á Ísland.is Mynd: Af vef stjórnarráðsins.

Tækni­fyr­ir­tækið YAY ehf. fékk greiddar 4 millj­ónir króna fyrir að hanna snjall­símafor­rit utan um ferða­gjöf stjórn­valda, sem gerð var aðgengi­leg fyrir helgi. Samkvæmt atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu var lausn fyr­ir­tæk­is­ins metin hæfust af fjölda lausna sem upp­haf­lega voru skoð­aðar, en fyr­ir­tækið hafði þegar þróað sam­bæri­lega lausn fyrir staf­ræn gjafa­bréf í far­síma sem ráðu­neytið segir að komin hafi verið góð reynsla á.[links]

Samkvæmt svari ráðu­neyt­is­ins var strax við frum­skoðun á ferða­gjafa­verk­efn­inu talið að kaup á staf­rænni lausn vegna gjafa­bréf­anna yrði undir útboðs­mörkum, sem varð síðan raunin.

„Af þeim sökum voru margar fýsi­legar lausnir skoð­aðar og í kjöl­farið var ráð­ist í verð­fyr­ir­spurn, í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup, til að gæta að meg­in­reglum um jafn­ræði, gagn­sæi og sam­keppni meðal þeirra fyr­ir­tækja sem talið var að gætu útvegað tækni­lega lausn sem þegar væri til staðar til að leysa þessar þarfir án mik­ils þró­un­ar­kostn­aðar. Mark­miðið með þessu var að halda kostn­aði vegna verk­efn­is­ins í lág­marki og koma því af stað eins hratt og örugg­lega og hægt væri í ljósi alvar­legrar stöðu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja hér landi,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fram kemur í svari ráðu­neyt­is­ins að YAY hafi ekki ein­ungis verið með fýsi­leg­ustu lausn­ina, heldur hafi fyr­ir­tækið einnig boðið lægsta verðið. Því var ákveðið að ganga til samn­inga við fyr­ir­tækið.

Auk þeirra 4 millj­óna sem fyr­ir­tækið fékk fyrir að hanna Ferða­gjafar-for­ritið reiknar ráðu­neytið með að greiða YAY á bil­inu 8-11 millj­ónir króna til við­bótar fyrir rekstr­ar­þjón­ustu for­rits­ins þar til verk­efn­inu lýkur, en ferða­gjaf­irnar, sem nema 5.000 kr. á hvern íbúa á Íslandi sem fæddur er 2002 eða fyrr, eru inn­leys­an­legar til loka árs.

YAY hefur ekki heimild til notkunar upplýsinga sem safnað er

Þegar not­endur sækja Ferða­gjafar-for­ritið í sím­ann sinn eru þeir beðnir um að gefa upp síma­númer sitt, net­fang, kyn og tengj­ast for­rit­inu svo með inn­skrán­ingu í gegnum Ísland.is. Einnig þurfa not­endur að sam­þykkja skil­mála YAY og inni í Ferða­gjafar-for­rit­inu má finna tengla á bæði skil­mála og per­sónu­vernd­ar­stefnu YAY.

Kjarninn spurði ráðu­neytið að því hvort YAY væri með þessu að fá heim­ild til þess að safna upp­lýs­ingum um not­endur Ferða­gjafar-for­rits­ins til þess að hafa sam­band við þá síðar í ein­hverjum öðrum við­skipta­legum til­gangi. Ráðu­neytið segir að svo sé ekki.

„Þeim upp­lýs­ingum sem safnað er, verða í eigu hins opin­bera og YAY hefur ekki heim­ild til notk­unar nú eða síðar,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Þá kemur enn fremur fram að þeir ferða­þjón­ustu­að­ilar sem taki þátt í ferða­gjöf­inni, sem orðnir eru yfir 4.000 tals­ins, þurfi ekki að stofna til við­skipta­sam­bands við YAY, heldur skrái fyr­ir­tæki sig inn á Ísland.is og fá þar með aðgang að bak­enda­kerfi sem gerir þeir kleift að halda utan um notkun ferða­gjaf­ar­innar og taka á móti henni.

Engin nauðsyn að sækja forritið til að nýta gjöfina

Ráðu­neytið tekur fram í svari sínu að ekki er nein nauð­syn fyrir fólk að sækja Ferða­gjafar-for­ritið í sím­ann sinn til þess að leysa út ferða­gjöf­ina, heldur er einnig hægt að gera það með því að sækja strik­a­merki í sím­ann á Ísland.is.

Forritið er þó hugsuð sem not­enda­væn og ein­föld leið til að halda utan um gjöf­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár