Ferðagjöf stjórnvalda komin í gagnið

Ferða­gjöf­inni er ætlað að styðja við bakið á ferða­þjón­ust­unni og hvetja lands­menn til að eiga góðar stundir. Upphæð gjaf­ar­innar er 5.000 krónur.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Ferða­gjöfin svo­kall­aða, sem ætlað er að styðja við bakið á ferða­þjón­ust­unni í kjöl­far COVID, er nú aðgengi­leg.Til­gang­ur­inn með gjöf­inni, sem er að upp­hæð 5.000, er að efla ferða­þjón­ust­una sam­hliða því að hvetja lands­menn að „eiga góðar stundir á ferða­lagi víðs vegar um landið,“ segir í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Á vef Ferða­mála­stofu má sjá þau fyr­ir­tæki sem hyggj­ast taka á móti Ferða­gjöf­inni, þar með talin hótel, gisti­heim­ili, afþrey­ing­ar­fyr­ir­tæki, bíla­leigur og veit­inga­staði auk þess sem þar er hægt að sjá ýmis til­boð í tengslum við verk­efnið. Enn er hægt að skrá fyr­ir­tæki til leiks, segir í til­kynn­ing­unni.

Ein­stak­lingar með lög­heim­ili á Íslandi, íslenska kenni­tölu og eru fæddir árið 2002 eða fyrr fá raf­ræna Ferða­gjöf að upp­hæð 5000 krónur. Þeir sem ekki nýta Ferða­gjöf­ina geta gefið hana áfram, en hver ein­stak­lingur getur notað að hámarki 15 gjafir. Hægt er að nota Ferða­gjöf­ina til næstu ára­móta.

Hvert og eitt fyr­ir­tæki mun að hámarki tekið við 100 millj­ónum króna í formi ferða­gjafa og fyr­ir­tæki sem metið var í rekstr­ar­erf­ið­leikum 31. des­em­ber 2019 getur að hámarki tekið við sam­an­lagt 25 millj­ónum króna.

„Það er mjög ánægju­legt að þess­ari ívilnun í þágu ferða­laga inn­an­lands hafi nú verið hleypt af stokk­unum,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ferða­mála­ráð­herra í til­kynn­ing­unni. „Einn og hálfur millj­arður er tölu­verð fjár­hæð og þó að hlutur hvers og eins skipti kannski ekki sköpum fyrir ein­stak­ling­inn felst í honum er þetta ótví­ræð hvatn­ing um að nýta þá fjöl­breyttu og góðu þjón­ustu sem íslensk ferða­þjón­usta hefur upp á að bjóða. Ég þakka öllum sem unnu hörðum höndum að tækni­legri útfærslu á verk­efn­inu og ég vona að þetta íslenska ferða­sumar verði okkur sem flestum bæði ánægju­legt og eft­ir­minni­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár