Eignastýringarfyrirtækið BlackRock tapar 1,7 billjón dala

Tap banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins BlackRock á fyrri helm­ingi árs­ins sam­svarar rúm­lega sjö­tíu­faldri lands­fram­leiðslu Íslands. Aldrei áður hefur tap eins fyr­ir­tækis verið jafn mikið á sex mán­uðum.

Larry Fink er forstjóri og stjórnarformaður eignastýringarfyrirtækisins BlackRock. Hann er einnig einn af stofnendum fyrirtækisins.
Larry Fink er for­stjóri og stjórn­ar­for­maður eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins BlackRock. Hann er einnig einn af stofn­endum fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: EPA

Black Rock sem er stærsta eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki heims tap­aði 1,7 billjón dala á fyrri helm­ingi árs­ins. Það er met en aldrei áður hefur fyr­ir­tækið skilað jafn miklu tapi á sex mán­aða tíma­bili. Frá þessu er greint á vef Daily Wire. 1,7 billjón er stór tala en hana má einnig rita sem 1.700 millj­arðar. Í krónum talið nemur tapið rúmum 230 billjónum – eða rúmum 232 þús­und millj­örðum. Til að setja þessa tölu í eitt­hvað sam­hengi, þá er tapið rúm­lega sjö­tíu­föld lands­fram­leiðsla Íslands en í fyrra var hún rúmir 3200 millj­arðar króna.

BlackRock á stóra eign­ar­hluti í mörgum af stærstu fyr­ir­tækjum Banda­ríkj­anna, til að mynda á félagið 4,2 pró­senta hlut í Apple, 4,5 pró­senta hlut í Microsoft og 3,6 pró­senta hlut í Amazon. Umtals­verð lækkun hefur orðið á hluta­bréfa­verði vest­an­hafs það sem af er ári og það á sann­ar­lega við um verð á hluta­bréfum í þessum félögum. Af þeim félögum sem hér hefur verið minnst á varð minnst lækkun á verði hluta­bréfa í hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Microsoft en á fyrri helm­ingi árs­ins lækk­aði það um rúm 13 pró­sent. Hluta­bréfa­verð Apple lækk­aði hins vegar um hátt í fjórð­ung og mest verð lækk­unin á verði hluta­bréfa Amazon, um tæp 38 pró­sent.

„Á fyrri helm­ingi árs­ins var fjár­fest­inga­um­hverfið með öðru sniði en verið hefur í ára­tugi,“ var haft eftir Larry Fink, for­stjóra BlackRock, í hálfs­árs­upp­gjöri félags­ins. „Fjár­festar hafa glímt við mikla verð­bólgu, hækkun stýri­vaxta og verstu árs­byrjun í hálfa öld á mörk­uðum með bæði hluta- og skulda­bréf.“

Þróun hlutabréfaverðs á Íslandi og í Bandaríkjunum svipað

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins lækk­aði S&P 500 vísi­talan um rúm­lega 21 pró­sent, en vísi­talan fylgir verði 500 stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna. Frá lokum júní hefur vísi­talan hækkað um 4,6 pró­sent en engu að síður hefur vísi­talan fallið um 17,4 pró­sent það sem af er ári.

Ef fer­ill hinnar íslensku Úrvals­vísi­tölu er skoð­aður sést að hann er nokkuð svip­aður ferli S&P 500 vísi­töl­unnar í ár. Úrvals­vísi­talan er sam­sett af þeim tíu félögum sem hafa virk­ustu verð­mynd­un­ina, eða með öðrum orðum, þau félög sem mest við­skipti eru með á mark­aði. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins lækk­aði vísi­talan um rúm­lega fimmt­ung en frá júnílokum hefur hún hækkað um hátt í sex pró­sent. Frá ára­mótum hefur úrvals­vísi­talan samt sem áður lækkað um 17,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár