Pólitíkin á Íslandi eitt vinsælasta aðhlátursefnið í útlöndum

Helstu póli­tísku grín­þættir heims hafa tekið Sigmund Davíð fyrir eftir atburði síð­ustu viku. John Oliver sagði við­talið líkj­ast bílslysi í „slow motion“. Bretar og Ástralir taka Sigmund líka fyrir.

John Oliver gerði stólpagrín að viðtalinu við Sigmund Davíð
John Oliver gerði stólpa­grín að við­tal­inu við Sigmund Davíð Mynd: Youtube

Myndbönd með Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í aða­hlut­verki hafa farið víða á net­inu um helg­ina. Nýjasta vend­ingin varð í gær þegar John Oliver í Last Week Tonight, arf­taki Jon Stewart í Daily Show, tók Sigmund Davíð fyrir. Oliver líkti við­tal­inu við for­sæt­is­ráð­herra í sænska rík­is­sjón­varp­inu við bílslys í „slow motion“ og bætti við að það væru vissu­lega bílar á Íslandi, þó að sumir haldi öðru fram.

Breski umræðu­þátt­ur­inn vin­sæli Have I Got News For You gerði sér einnig mat úr við­tal­inu við Sigmund. Stjórn­endur þátt­ar­ins fá til sín gesti þar sem farið er yfir mál­efni líð­andi stundar á léttum nótum.

Sig­mundur var líka tek­inn fyrir í Ástralíu, í einum vin­sælasta frétta­tengda grín­þætti lands­ins, The Weekly with Chalie Pickering. Pickering sýndi við­brögð Sig­mundar í áður­nefndu við­tali og sagði áhorf­endum að rétt við­brögð við erf­iðum spurn­ingum fjöl­miðla væru að „grafa holu sem maður kemst ekki upp úr“ og „stökkva svo ofan í hana.” Að lokum væri eina rétta leiðin að kenna kon­unni sinni um allt saman.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra varð ekki útundan í grín­inu um helg­ina. Viðtal við frétta­mann franska fjöl­mið­ils­ins Le Petit Journal hefur farið víða og sýnir Bjarna standa í ágangs­hörðum spurn­inga­flaumi við frétta­mann­inn. Frétta­mað­ur­inn spyr Bjarna, þegar hann til­kynnir að hann ætli að sitja áfram sem fjár­mála­ráð­herra hvort „það sé svona sem lýð­ræði virki á Íslandi”. Bjarni spyr þá um hæl hvaðan frétta­mað­ur­inn sé, sem svarar um hæl að hann sé frá Frakk­landi. Viðbrögð Bjarna: „Allt í lagi.” 

Sænski frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Uppdrag Granskning gerði þátt um upp­ljóstrun á tengslum Sig­mundar Davíðs við aflands­fé­lagið Wintris og aðdrag­anda við­tals­ins sem frétta­mað­ur­inn Sven Bergman og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son blaða­maður tóku við hann 11. mars. Hér má sjá óklippta útgáfu af því við­tali og hér má nálg­ast Uppdrag Granskning-þátt­inn um málið sem sýndur var á RÚV í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár