Segir ekkert benda til þess að siðareglur RÚV hafi ekki verið virtar

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri segir að RÚV hafi verið að sinna hlut­verki sínu og skyldum með því að fjalla um mál­efni Jóns Baldvins. Hann segir að fjöl­miðlar eigi að vera full­trúar almenn­ings og í því felist að þurfa að taka á erf­iðum málum.

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV.
Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri RÚV. Mynd: RÚV

Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri RÚV, segir að umfjöllun RÚV um mál­efni Jón Baldvins hafi verið vönduð og Jóni hafi verið gefin mörg tæki­færi til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi, sem hann hafi svo gert í löngu við­tali í Silfrinu. Magnús segir jafn­framt að dag­skrár­stjórar og frétta­stjórar telji sem fyrr að frétta­gildi máls­ins hafi verið ótví­rætt og ekk­ert sem bendi til ann­ars en að vinnu­reglur og siða­reglur RÚV hafi verið virtar. Þetta kemur fram í aðsendri grein Magnúsar Geirs sem birt var í Morg­un­blað­inu í dag.

Telja að fréttagildi málsins hafi verið ótvírætt

[links]Í gær birtu Jón Baldvin Hanni­bals­son og Bryndís Schram opið bréf til útvarps­stjóra RÚV í Morg­un­blað­inu. Í bréf­inu saka hjónin dag­skrár­gerð­ar­menn­ina Sig­mar Guð­munds­son og Helga Selj­an um „til­hæfu­lausar ásak­an­ir, rangar full­yrð­ingar og æru­meið­ing­ar“, fyrst í við­tali í Morg­un­út­varp­inu Rás 2 í jan­úar síð­ast­liðnum og aftur í aðsendri grein Sig­mars og Helga í Morg­un­blað­inu þann 8. febr­úar síð­ast­lið­inn. Í bréf­inu gefa hjónin útvarps­stjóra eina viku til að draga til baka „meið­yrðin“ í þeirra garð. Í bréf­inu segir að verði útvarps­stjóri ekki við þeirri beiðni hyggj­ast Jón Baldvin og Bryndís stefna honum, starfs­mönnum hans og við­mæl­endum fyrir rétt, til þess að fá „meið­yrði, rang­hermi og til­hæfu­lausar ásak­anir dæmdar dauðar og ómerkar.“

Í grein Magnúsar Geirs sem titluð er, Svar við opnu bréfi Jóns Baldvins og Bryn­dísar Schram, segir að þegar RÚV fjall­aði um mál­efni Jón Baldvins höfðu birst fjöl­margar fréttir í ólíkum fjöl­miðlum sem byggð­ust á frá­sögnum fjölda kvenna af sam­skiptum við Jón. Hann segir jafn­framt að umfjöllun RÚV hafi verið vönduð og Jóni hafi verið gefin mörg tæki­færi til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi, sem hann svo gerði í við­tali í Silfrinu.

Hann segir jafn­framt að dag­skrár­stjórar og frétta­stjórar telji sem fyrr að frétta­gildi máls­ins hafi verið ótví­rætt og ekk­ert sem bendi til ann­ars en að vinnu­reglur og siða­reglur RÚV hafi verið virtar. „Fjöl­miðlar eiga að vera full­trúar almenn­ings og í því felst að þurfa að taka á erf­iðum málum. Með umræddri umfjöllun var Rík­is­út­varpið að sinna sínu hlut­verki og skyldum,“ segir Magnús

Hvetur Jón Baldvin og Bryndísi til að beina málinu í formlegan farveg

Í grein­inni segir Magnús að um Rík­is­út­varpið gildi sér­stök lög sem svo séu áréttuð í þjón­ustu­samn­ingi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið. Einnig hafi RÚV sett starfs­fólki sínu ítar­legar frétta­reglur til að tryggja óhlut­drægni og sann­gjarna máls­með­ferð „Allt er þetta gert til að tryggja vand­aðan frétta­flutn­ing og dag­skrár­gerð. Störf Rík­is­út­varps­ins eru opin­ber og almenn­ingur getur lagt sjálf­stætt mat á þau en sam­kvæmt opin­berum mæl­ingum nýtur Rík­is­út­varpið yfir­burða­trausts meðal almenn­ings.“ segir í grein­inni.

Magnús segir að ef ein­hver sé ósáttur við til­tekin atriði í frétta­flutn­ingi taki RÚV fús­lega við athuga­semdum og svari með form­legum hætti. Ef við­kom­andi sé síðan ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fái segir Magnús að hægt sé að beina mál­inu til sér­stakrar siða­nefndar sem leggur sjálf­stætt mat á fram­göngu starfs­manna RÚV en að auki má benda á að allir geta skotið málum til Blaða­manna­fé­lags Íslands. Hann hvetur því Jón Baldvin og Bryndísi til að gera það ef þau telja hallað á sig. „Ef Jón Baldvin og Bryndís telja á sig hallað hvet ég þau til að beina málum í þennan form­lega far­veg sem er til staðar fyrir þau eins og aðra“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár