Jón Baldvin og Bryndís hóta því að stefna RÚV

Hjónin Jón Bald­vin Hanni­bals­son og Bryn­dís Schram skrifa opið bréf til út­varps­stjóra í Morg­un­blað­inu í dag þar sem þau gefa hon­um, starfs­mönn­um RÚV og við­mæl­end­um viku til að biðj­ast af­sök­un­ar ann­ars verði þeim stefnt.

Jón Baldvin Hanni­bals­son og Bryndís Schram gefa Magnúsi Geir Þórð­ar­syni, útvarps­stjóra RÚV, eina viku til að draga til baka „til­hæfu­lausar ásak­anir, rangar full­yrð­ingar og meið­yrði“ í þeirra garð. Verði útvarps­stjóri ekki við þeirri beiðni hyggj­ast Jón Baldvin og Bryndís stefna honum, auk starfs­mönnum hans, sem og við­mæl­endum, fyrir rétt til þess að fá „meið­yrði, rang­hermi og til­hæfu­lausar ásak­anir, dæmdar dauðar og ómerkar.“ Auk þess verði Rík­is­út­varp­inu gert skylt að bæti „þolendum þess­arar ófræg­in­ar­her­ferðar“ það tjón þau hafa orðið fyrir að völdum RÚV. Þetta kemur fram í opnu bréfi Jóns Baldvins og Bryn­dísar sem birt var í Morg­un­blað­inu í dag.

Saka Sigmar og Helga um rangar fullyrðingar og ærumeiðingar

[links]Í grein­inni saka hjónin dag­skrá­gerð­ar­menn­ina Sigmar Guð­munds­son og Helga Seljan um til­hæfu­lausar ásak­anir, rangar full­yrð­ingar og æru­meið­ingar, fyrst í við­tali í Morg­un­út­varp­inu Rás 2 í jan­úar og aftur í aðsendri grein Sigmars og Helga í Morg­un­blað­inu þann 8. febr­úar síð­ast­lið­inn. Viðtalið á Rás 2 var við Aldísi Schram, dóttur Jóns Baldvins og Bryn­dísar. Þar sak­aði Aldís föður sinn um að hafa farið fram á að hún yrði nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild í kjöl­far ásak­ana í hans garð um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Jón Baldvin gagn­rýndi svo vinnu­brögð Sigmars og Helga harð­lega í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu þann 7. febr­úar og sagði það „háal­var­legt mál“ að fjöl­mið­ill á borð við Rík­is­út­varpið bæri á borð „fals­fréttir“ af þessu tagi fyrir hlust­endur sína.

Sigmar og Helgi svör­uðu síðan ásök­unum í grein Jón Baldvins í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu dag­inn eftir, þann 8. febr­úar. Í grein­inni segja þeir að við­talið hafa átt fullt erindi við almenn­ing. „Blaða­menn geta ekki í dag af­greitt sögu henn­ar sem „geð­veiki“ eða „fjöl­skyldu­harm­leik“. Fjöldi kvenna hef­ur stað­fest ásak­an­ir henn­ar í gegn­um árin með því að stíga fram og segja frá hegðun Jóns Bald­vins. Al­dís styður mál sitt gögn­um, svo sem sjúkra­skýrsl­um, lækn­is­vott­orðum, lög­reglu­skýrsl­um og skrán­ingu, og svo sendi­ráðs­papp­írum. Viðtalið við hana átti því fullt er­indi við al­menn­ing og von­andi er sá tími lið­inn að hægt sé að af­greiða upp­lif­un þeirra sem glíma við and­leg veik­indi sem óráðs­hjal.“

Auk þess er tekið fram í grein Sigmars og Helga að reynt hafi verið að hafa sam­band við Jón Baldvin fyrir birt­ingu við­tals­ins til að fá við­brögð en að sam­kvæmt grein­inni var því ekki svarað. Frétta­menn­irnir benda einnig á að auk þess hafi því verið haldið til haga í þætt­in­um að Jón Baldvin neiti stað­fast­lega öll­um ásök­un­um um brot og áreitni.

Telja upp dæmi um fjórtán „falsfréttir“

Í bréfi sínu spyrja Jón Baldvin og Bryndís hvort vinnu­brögð Sigmars og Helga stand­ist siða­reglur blaða­manna og rit­stjórn­ar­stefnu RÚV. „Frétta­menn­irnir full­yrða, að þeir séu „ekki ábyrgir fyrir orðum við­mæl­enda sinna …“ Sé það rétt, þá hlýtur að vakna sú spurn­ing, hvort þeir megi þá að ósekju lepja upp slúður, gróu­sögur, per­sónu­níð eða aðra ill­mælgi – í útvarpi allra lands­manna? Og fá níðið nið­ur­greitt hjá skatt­greið­endum. Það væri þá bara á ábyrgð þeirra, sem ljúga að þeim. Eruð þér, herra útvarps­stjóri, sam­mála þess­ari starfs­lýs­ingu handa frétta­mönnum Rík­is­út­varps­ins?“

Þá greina Jón Baldvin og Bryndís frá fjórtán dæmum um „fals­fréttir“, sem þau segja Sigmar og Helga hafa borið á borð fyrir hlust­endur sína í við­tal­inu við Aldísi á Rás2.

Sjö daga frestur til að biðjast afsökunar

Að lokum skora þau á útvarps­stjóra að draga til baka allar „til­hæfu­lausu ásak­an­irnar“. „Í ljósi þess, sem að framan er sagt, skorum við hér með á yður, hr. útvarps­stjóri, að þér, f.h. Rík­is­út­varps­ins, dragið til baka allar þessar til­hæfu­lausu ásak­anir, röngu full­yrð­ingar og meið­yrði starfs­manna yðar, sem hér hafa verið til­greind og takið af tví­mæli um, að þau skuli skoð­ast sem dauð og ómerk.“

Einnig fara þau fram á að Sigmar og Helgi hljóti „alvar­lega áminn­ingu“ og jafn­framt að áheyr­endur Rík­is­út­varps­ins verði beðnir afsök­unar. „Einnig væri við hæfi, að þér gæfuð áður­nefndum frétta­mönnum alvar­lega áminn­ingu fyrir gróf brot á siða­reglum Rík­is­út­varps­ins, svo sem gert er ráð fyrir í siða­regl­unum sjálfum. Þá væri og við hæfi að biðja áheyr­endur Rík­is­út­varps­ins afsök­unar á óboð­legum vinnu­brögðum umræddra frétta­manna um leið og því væri heitið að óþol­andi mis­notkun á fjórða valdi Rík­is­út­varps­ins yrði ekki liðin fram­vegis.“

Jón Baldvin og Bryndís gefa útvarps­stjóra sjö daga frest til að bregð­ast við erindi sínu. Verði hann hins vegar ekki við áskor­un­inni hyggj­ast þau stefna honum fyrir rétt.„En ef þér, hr. útvarps­stjóri, kjósið að bregð­ast ekki við þess­ari áskorun okkar, áskiljum við okkur allan rétt til að stefna yður, fyrir hönd Rík­is­út­varps­ins, og starfs­mönnum yðar, sem og við­mæl­endum, fyrir rétt, til þess að fá meið­yrði, rang­hermi og til­hæfu­lausar ásak­anir, dæmdar dauðar og ómerkar. Og að Rík­is­út­varp­inu verði skylt að bæta þolendum þess­arar ófræg­ing­ar­her­ferðar það tjón, sem þau hafa orðið fyrir af völdum RÚV.“

Í lok grein­ar­innar segir að þau hjónin und­ir­riti þetta opna bréf bæði þar sem fjöl­skyldur þeirra, ekki bara þau sjálf, hafi beðið óbæt­an­legt tjón af völdum „til­efn­is­lausra ásak­ana, rang­hermis og meið­yrða í umfjöllun frétta­manna RÚV.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjömiðlar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár