Oft eiga sér stað gagnlegar og yfirvegaðar samræður á Silfrinu á Rúv. Það gerðist í gær (10.04´21). Þátturinn var þrískiptur. Í fyrsta hluta hans voru til umræðu niðrandi orð um litarhátt fólks og kynþætti vegna ummæla formanns Framsóknarflokksins um konu af erlendu bergi. Einn þátttakenda, Claudia Wilson lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík er innflytjandi frá Jamaíka. Hún starfar hér sem mannréttindalögfræðingur. Hérlendis er grunnt á kynþátta fyrirlitningu og margir Íslendingar líta niður á „hina svörtu” og „þá gulu”; jafnframt „alla þessa Pólakka”. Hið jákvæða framlag Claudiu í samtalinu er afar mikilvægt fyrir alla þá sem vilja forðast kynþáttahatur.
Í öðrum hluta þáttarins var fjallað um söluna sem fram fór á Íslandsbanka á dögunum. Þar var minna um yfirvegun þó að hún væri nokkur hjá flestum þátttakendum. Reyndar öllum nema einum ungum krata. Hann talaði af nokkurri skynsemi í upphafi máls síns, í 35 - 40 sekúndur, en eftir það var eins og hann malaði úr sér vitið og í hlustandanum sem horfði á unga manninn sat eftir spurningin: Hvað höfum við að gera með svona gasprara á Alþingi?
[adspot]Þar sem ég horfði og hlustaði, vaknaði upp í mér fólið. Það kallaði farm minningu um að við Íslendingar höfum lagt það í vana okkar að uppnefna fólk; stundum til þess að greina einn frá öðrum, stundum af öðrum ástæðum. Þetta höfum við gert frá því land byggðist: Jón dauðablóð, Tommi á teppinu, Stutta-Sigga svo fátt eitt sé tínt til. Friðjóni Friðjónssyni varaþingmanni varð það á í pontu á alþingi að uppnefna tvo þingmenn. Hann hlaut bágt fyrir. Samt vill svo til að báðir þessir þingmenn, maður og kona, ganga oftar en ekki undir þeim uppnefnum, sem Friðjón kastaði fram, í almennri umræðu á götum úti; jókerinn og prinsessan. Jókerinn gerði uppnefnið að réttnefni í Silfrinu í gær.
Í þriðja hluta þáttarins var rætt um siðferði við Vilhjálm Árnason heimspekiprófessor. Það var þörf á. Ég held að sem flestir ættu að horfa á þáttinn. Allan. Það er fræðandi. Jafnvel mannbætandi. Og þegar ég les þetta yfir sé ég að mér veitir ekki af því að hlusta aftur, einkum á Vilhjálm. Kannski tvisvar.
Höfundur er rithöfundur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir